Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Blogg

27.8.2010

Ótitlað

Hæhæ

Í gær var nestisdagur hjá Bakka og Bóli  og fóru öll börnin í gönguferð og borðuðu nestið úti. Elstu börnin á Bakka fóru í strætóferð upp í Gerðuberg og tóku nestið með :) 
       
Nestisferð yngri börn á Bakka    Nestisferð eldri börn á Bakka

Hópastarf er farið í gang hjá Bakka og var áhugi hjá börnunum að vinna með umferðina í næsta þema.

Hreyfingin byrjar í september. Eldri börnin á Bakka fara í KR heimilið á miðvikudögum og mega þau koma með íþróttaföt með sér. Gott að börnin séu ekki mætt seinna en kl. 8:50.
Yngri börnin fara í hreyfingu í Gleðigarð á þriðjudögum.

Berglind tónlistarkennari byrjar einnig með tónlistina í september.

Stjörnurnar (skólahópurinn) er aðeins byrjaður í skólahóp og eru tvisvar sinnum í viku.
  
Stjörnurnar (skólahópur)

Við ætlum að fara að stað með vinabangsa á Bakka og Bóli. Þá kemur barnið heim með bangsa og dvelur hann hjá því í einn dag. Bók fylgir með bangsanum þar sem gaman væri ef þið foreldrar mynduð aðstoða börnin að skrifa í (útskýringar fylgja með bókinni).
Á Bakka verða tveir bangsar einn fyrir eldri hópinn sem heitir Hlynur og einn fyrir yngri hópinn sem heitir Krúttið. Á Bóli verður einn bangsi fyrir eldri börnin sem heitir Birna.

                 Krúttið á Bakka

Margt spennandi að gerast hjá okkur á næstunni emoticon

Það er komnar nýjar myndir inn í myndaalbúmið bæði hjá Bakka

kv Bakki og Ból

Skrifað 27.8.2010 kl. 12:10 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

17.8.2010

Ótitlað

Hæhæ

Við vonum að þið hafið haft það gott í sumarfríinu :)

Nú erum við komin á skrið eftir gott sumarfrí.  Aðlögun nýrra barna á Bóli er búin og gekk hún mjög vel.
 
Sumarlegar skvísur á Bakka :)

Við viljum minna foreldra barna á Bakka á foreldrafundinn sem verður á morgunn miðvikudag kl.9:00 í fyrramálið. Þá munum við kynna starfið í vetur og einnig mun starfsfólkið kynna sig.

Við erum búin að setja inn matseðil fyrir þessa viku á síðuna. Einnig erum við búin að setja inn hópaskiptinguna á Bakka fyrir veturinn sem og skiptingu í hreyfinguna. 

Við munum setja inn upplýsingar um hópa og fleira á Bóli um leið og það er tilbúið.

kv Bakki og Ból

Skrifað 17.8.2010 kl. 13:33 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 202
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 240676
Samtals gestir: 52100
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 21:40:09

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar