Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

17.04.2007 11:26

Breyting á foreldraviðtölum á Bóli , snúðaskokk og fleira

Hæhæ

Það er smá breyting á foreldraviðtölum á Bóli. Þau verða á miðvikudaginn 25. apríl og miðvikudaginn 2. maí. Það er komið upp blað til að skrá sig á bæði fyrir Ból og Bakka.

Í dag þriðjudag var snúðaskokk. Börnin fóru út og hlupu smá hring í hverfinu og þegar þau komu í mark þá fengu allir snúð namm namm.  

         
(ps. það eru myndir frá snúðaskokkinu í myndaalbúminu)

Á fimmtudaginn 19. apríl er sumardagurinn fyrsti og er þá frí á leikskólanum. GLEÐILEGT SUMAR

Bakki


Annars er það að frétta af Bakka að við höfum verið að gera saumamyndir með tveim elstu hópunum. Börnin teiknuðu fyrst einfalda mynd á blað og hjálpuðum  við þeim að gera göt eftir línunum og þau saumuðu svo í. Þau eru alveg ótrúlega dugleg að sauma og þeim fannst þetta rosa gaman.
Yngri hóparnir voru að byrja vinna sandmyndir (sjálfsmynd).

Annars er vor í lofti og við erum farin að vera meira úti þegar gott er veður.  Hópastarfið mun litast af því og ætlum við að fara að vinna með nánasta umhverfið okkar, þ.e. fjöruna og einnig að fylgjast vel með vinatréinu okkar sem fer að taka miklum breyitingum núna næstu vikurnar.

Ból

Á Bóli eru yngri hóparnir að vinna með gula litinn og verður fljótlega gult ball á Bóli. Eldri hóparnir eru enn að vinna með ,,ég sjálfur,, .

Bestu kveðjur starfsfólk á Bóli og Bakka


Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 83
Gestir í gær: 27
Samtals flettingar: 384548
Samtals gestir: 86635
Tölur uppfærðar: 20.5.2012 08:49:26

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar