|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Blogg26.6.2008Nú fer að styttast í sumarfríHæhæ Jæja þá fer að styttast í sumarfrí hjá okkur hér á Skerjagarði. Síðasti dagurinn fyrir sumarfrí er mánudagurinn 31. júní. Annars er veðrið búið að leika við okkur í júní og við búin að vera mikið úti að leika og allir orðnir brúnir og sællegir. Elstu börnin okkar eru búin að vera mikið á ferðinni og eru t.d. búin að fara í heimsókn til hennar Berglindar tónlistarkennara upp í Álafosskvos. Þar eyddu þau góðum degi. Það voru grillaðar pylsur, leikið sér í náttúrunni og farið í latabæjarhlaup. ![]() SKólahópurinn er svo búinn að fara í hjólreiðaferð í Nauthólsvíkina. Allir mættu með hjólin sín og hjóluðu saman á ströndina og borðuðu hádegismat þar og nutu veðurblíðunnar. Skólahópurinn fór einnig í útskriftarferð en að þessu sinni var farið í bæjarferð þ.e. í hjómskálagarðinn og rölt í bænum. Síðan var farið heim til Ellu í kópavoginn og þar voru grillaðir hamborgarar, leikið sér á trampólíninu og farið í heita pottinn. Allir voru mjög ánægðir eftir daginn. ![]() Yngri börnin eru líka búin að fara í vettvangsferðir en þá bara hér í hverfinu. Það er búið að fara í fjöruna, út á aparóló og á skógarróló. ![]() Sumarhátíðin gekk mjög vel og komu börnin í furðufötum í leikskólann og farið var í skrúðgöngu um hverfið með fána. Í garðinum var svo hoppukastali sem börnin skiptust á að fara í. Í hádeginu var svo pizzapartý. Latabæjarhlaupið var svo haldið í júní. Börnin eru orðnir miklir hlaupagarpar og stóðu sig auðvitað mjög vel í hlaupinu. Í lokin fengu svo öll börnin latabæjarmedalíu :-) ![]() ATH! Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 202 Gestir í dag: 45 Flettingar í gær: 218 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 240676 Samtals gestir: 52100 Tölur uppfærðar: 4.9.2010 21:40:09 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |