Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Blogg

27.8.2008

Bakkafréttir

Hæhæ

Jæja þá erum við á Bakka komin á fullt skrið með sjóræningjaþema. Við erum búin að vera að skoða mikið af bókum þar sem sjóræningjar koma fram í og fræðast um þá.
Yngri börnin á Bakka (þ.e. börn fædd 2005 og 4 börn fædd 2004) eru búin að fara í fjöruna og grafa holur og athuga hvort að þau fyndu fjársjóð. Þau fundu ekki fjársjóð og komust þau af því að það væri vegna þess að þau hefðu ekkert fjársjóðskort :-)  Þau eru líka búin að búa til sjóræningjasjónauka.
  

Eldri börnin á Bakka
eru búin að fara og týna steina sem þau ætla að hafa sem fjársjóð í fjársjóðskistu sem þau útbúa sjálf. Þau ætla síðan að fela fjársjóðinn og útbúa fjársjóðskort og skiptast á við annan hóp og leyta síðan að fjársjóðnum. Þau eru búin að mála steinana (fjársjóðinn) og fjársjóðskistuna og einnig að útbúa sjónauka.  Þannig að það er ýmislegt sem þeim dettur í hug að gera sem tengist sjóræningjum. 
    

Við höfum verið að hlusta á sjóræningjalag af diskinum með honum Pétri Pan og læt ég textann fylgja.

Sjóræningjasöngur

Hæ hó, hæ hó,
fáni, kúpu og beina,
hæ hó, hæ hó,
fáni, kúpu og beina

Frammi í stafni flöggum við
fána kúpu og beina.
Þjórum romm að þekktum sið
þú veist hvað ég meina.

Hæ hó, hæ hó
o.s.frv.

Af okkur stöndum stíðin grimm
strauma og illra veðrra.
Verði ég allur fyrir fimm
finndu mig þá í neðra

Hæ hó, hæ hó,
o.s.frv.

Allir setja upp óttasvip
er ég munda korða,
yfirgefa allir skip
on´í djúp sér forða.

Hæ hó, hæ hó,
o.s. frv.

Elstu tveir hóparnir hafa fundið nafn á hópinn sinn.
Annar hópurinn heitir ,,Rassálfar,, (Egill, Tómas, Einar Skúli, Stebbi, Einar Páll, Svava og Agla).
Hópstjóri Rasssálfa er Erna
Hinn hjópurinn heitir ,,Leðurblökurnar,, (Gunnar, Lúkas, Thor, Sindri, Ágúst, Einar Geir, Íris Erla og Valdís). Hópstjóri er Inga Nanna.
Rassálfarnir     Leðurblökurnar

Skólahópurinn okkar hefur einnig fengið nýtt nafn og eru þeir núna MEISTARARNIR og er lykilorðið þeirra ,,Æfingin skapar meistarann,,.
    

Við viljum síðan biðja ykkur foreldra um að passa upp á að það séu öll útiföt meðferðis sem börin ykkar þurfa að nota í leikskólanum. Það hafa mörg börn ekki verið með húfur síðustu daga og það er frekar kalt þegar rignir beint á þau.

Að lokum viljum við svo minna á HATTADAG sem verður á morgunn fimmtudag fyrir bæði börn á Bakka og Bóli. Þa´mega börnin koma með hatta að heiman.

Það eru komnar nýjar myndir á heimasíðuna

kv Bakki

Skrifað 27.8.2008 kl. 13:47 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

20.8.2008

Sumarfríið búið

Hæhæ

Jæja þá er sumarfríið á enda og allir komnir aftur á Skerjagarð. Við höfum farið rólega af stað þar sem aðlaganir nýrra barna standa yfir. Viljum við bjóða nýja foreldra og börn velkomin til okkar á Skerjagarð .

Það eru ekki miklar mannabreytingar hjá okkur þennan veturinn    Hún Steinunn er að fara í skóla og er síðasti dagurinn hennar á föstudaginn og munum við sakna hennar mikið og óskum við henni velfarnaðar í skólanum. Við erum búnar að fá nýjan starfsmann til okkar en hún heitir Rósella og verður hún á Bóli. Einnig verður hún Elín (dóttir Ellu og Óla) á Bóli sem aukamanneskja. Annars er sami starfsmannahópurinn og var í fyrra en smá tilfærslur eru á milli deilda. Hún Guðfinna sem var á Bakka er komin niður á Ból og er deildarstjóri þar. Helga sem var á Bóli er komin upp á Bakka og Ananda sem var á Bóli verður á Bakka og á Bóli.

Við höfum tekið upp nýja reglu í sambandi við hvað má koma með þegar börnin eiga afmæli. Við tókum þá ákvörðun að nú sé ekki í boði að koma með kökur á afmælisegi barnanna. Það verður í boði að koma með ís, snakk eða grænmeti. Við vonum allir verði ánægðir með þessa breytingu
 

Í síðustu viku var nestisdagur hjá okkur og komu þá börnin með nesti að heiman og fórum við út á skógarróló og borðuðum nestið okkar. Það er alltaf mikil stemning fyrir nestisdegi og þá sérstaklega þegar hægt er að borða það úti.
    

Annars hefur veðrið leikið við okkur og höfum við notfært okkur það og verið mikið úti að leika.
Börnin á Bakka eru byrjuð að skoða bækur um sjóræningja en við ætlum að vera með sjóræningjaþema næstu daga eða vikur (fer eftir áhuga barnanna). Það er mikð búið að vera að skoða í sjóræningja og er mikill áhugi hjá börnunum.

Á Bóli eru aðlaganir í fullu gangi og ganga mjög vel  
Þetta verður flottur barnahópur á Skerjagarði þennan veturinn eins og alltaf

Það eru nýjar myndir í myndaalbúminu frá ágúst. Endilega kíkið á það.

Bestu kveðjur frá Bakka og Bóli

Skrifað 20.8.2008 kl. 10:22 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 202
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 240676
Samtals gestir: 52100
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 21:40:09

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar