Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2008 Október

21.10.2008 10:25

Hæhæ allir

Nú er orðið kalt í veðri og er þá nauðsynlegt að börnin séu vel búin með góðan kuldafatnað þ.e. kuldagalla, hlýja peysu, kuldaskó, hlýja vettlinga og húfu.
Það skiptir svo miklu máli að börnin séu vel búin til að vera úti að leika og líði vel á meðan þau eru úti. Það er erfitt að leika sér ef manni er kalt.

Í síðustu viku var náttfatadagur hjá okkur og mættu börnin í náttfötunum sínum og höfðum við það kósí þennan dag og höfðum náttfataball og fórum við í ýmsa skemmtilega leiki
.
   

Við minnum svo á að á mánudaginn 27. október er Alþjóðlegur bangsadagur og mega börnin þá koma með bangsa með sér í leikskólann.

Bakki
Á Bakka erum við enn að vinna með veðrið. Börnin hafa verið að skoða hvernig veðurspáin er fyrir hvern dag fyrir sig og unnið með veðrið á ýmsan hátt. Þau hafa verið að leira í tengslum við veðrið, málað og fleira.

Hlynur bangsi
 Nú er Hlynur farinn að fara heim með eldri börnunum á Bakka. Við ákváðum að breyta aðeins fyrirkomulaginu með hann. Nú fer hann alltaf heim með einhverju barni á föstudögum og kemur aftur í leikskólann á mánudegi. Þannig að nú fá öll börnin að fara með hann heim yfir helgi. Svo hvílir hann sig þess á milli í leikskólanum. Börnin eru mjög spennt að fara með hann heim og það er gaman að sjá hvað allir eru duglegir að skrifa í bókina hans Hlyns hvað gert var. Börnunum finnst svo gaman að sýna hinum börnunum hvað þau gerðu saman emoticon


Ból

Allt gengur sinn vanagang á Bóli. 


Það eru komnar fullt að nýjum myndum í myndaalbúmið emoticon

kv Bakki og Ból

14.10.2008 11:12

Hæhæ allir

Sigurvin frá Neskirkju kom í heimsókn til okkar síðastliðinn þriðjudag. Hann sér um barnastarfið í kirkjunni. Sigurvin kemur annan hvern þriðjudag kl. 9:00 til okkar í vetur. Hann byrjar á Bóli og kemur svo upp á Bakka. Hann segir börnunum sögur og við syngjum saman lög úr sunnudagaskólanum.

Bakki:
Á bakka erum við að spá og spekulera í veðrinu en það er nýja þemað hjá okkur. Við erum byrjaðar að hlusta á börnin hvað þau eru að spá í sambandi við veðrið og vinnum út frá því. Þetta veðurverkefni er sameiginlegt verkefni sem við tökum þátt í, í samvinnu við fleiri leikskóla sem vinna í anda Reggio Emilie.
   
Ból:
Á bóli eru yngstu krílin okkar í könnunarleiknum og svo eru þau að læra að leika saman og vera saman í hóp.
Elstu börnin á Bóli fara einu sinni í viku upp á Bakka í einingakubbana og vinna ýmis verkefni í hópastarfi. Þau eru einnig farin að spá aðeins í veðrið og ætla að taka þátt í veðurverkefninu. 
 
Meistararnir:
Meistararnir eru búnir að vera að leika sér með stafina. Einnig höfum við verið að æfa okkur í að klappa atkvæði, ríma og lært nokkrar þulur.

ps. fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu og matseðillinn fyrir okt. er loksins kominn

kv Bakki og Ból



08.10.2008 21:49

Ótitlað

Hæhæ

Það eru nýjar myndir í myndaalbúminu :-)


02.10.2008 14:05

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum byrja að þakka ykkur fyrir komuna á foreldrafundinn á þriðjudaginn. Það var ágætis mæting, en auðvitað viljum við alltaf sjá fleiri emoticon

Nú erum vði búin að setja inn á síðuna hópaskiptingu fyrir Ból sem og hópaskiptingu í tónlistina með Berglindi.
Dagskipulagið fyrir veturinn er einnig komið inn.

Stundaskrá fyrir október fyrir Bakka og Ból komin inn. Í október ætlum við að hafa útileikjadag, náttfatadag, dótadag og svo er alþjóðlegur bangsadagur og verður þá bangsadagur.

Kv Bakki og Ból
    Flettingar í dag: 55
    Gestir í dag: 28
    Flettingar í gær: 152
    Gestir í gær: 53
    Samtals flettingar: 364932
    Samtals gestir: 82631
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:40:25

    Vafraðu um

    Um mig

    Nafn:

    Leikskólinn Skerjagarður

    Farsími:

    8221919

    Heimilisfang:

    Bauganes 13

    Staðsetning:

    Skerjafjörður

    Heimasími:

    5518088

    Um:

    Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

    Tenglar