Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2008 Nóvember

25.11.2008 10:46

Jólafréttir

Hæhæ

Jólafréttir

-Jólaball verður 5. desember í Frostaskjóli. Foreldrar sækja börnin í leikskólann eigi síður en kl. 13.00, jólaballið hefst kl. 14:00. Foreldrar á Bóli sjá um veitingar fyrir börnin. Foreldrar á Bakka sjá um veitingar fyrir fullorðna.

-Kirkjuferð. 16. desember kl. 9:00 fara þrír elstu árgangar leikskólans í kirkjuferð. Börnin fara með rútu.

-Foreldrakaffi/jólakaffi verður 22. desember kl. 14:30

-Kaffihúsaferð. Í desember fara 2 elstu árgangarnir í Húsdýragarðinn. Farið verður 10 og 11. desember. Kaffihúsastemming verður á Skerjagarði fyrir yngri börnin.

-Lokað verður á Þorláksmessu og á milli jóla og nýárs.

-Frá 1. desember verða breytingar á morgunmatnum. Er það liður í hagræðingu í rekstri leikskólans og einnig viljum við leggja áherslu á hollara fæði. Á mánudögum verður í boði morgunkorn og hafragrautur. Á þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum verður eingöngu hafragrautur með rúsínum. Á föstudögum verður kakó og ristað brauð. Við viljum líka minna á að morgunmaturinn er búinn klukkan 8:45. Þá fara börnin inn á deildar.

-Muna einnig að taka allan fatnað með ykkur heim á föstudögum, einnig pollagallana. Það hefur verið erfitt fyrir ræstinguna að þrífa fataklefana þar sem þeir eru oft fullir af fötum sem hafa gleymst, vonum við að þetta komist strax í lag emoticon

-Í desember munum við svo leggja áherslu á að eiga rólegar og notalegar stundir saman með börnunum ykkar þar sem við föndrum saman, syngjum jólalög og fleira skemmtilegt.


ps. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið. Það eru nýjar myndir á 5 blaðsíðum.

kv Bakki og Ból

21.11.2008 20:38

Hundakúnstir á Skerjagarði

Hæhæ

Upptakan frá tónlistartímanum með Berglindi, krökkunum og Lilla (voffa) kom í fréttatímanum í kvöld.
Þið getið séð fréttina á: ruv.is 

  
kv Bakki

21.11.2008 15:01

Ótitlað

Hæhæ

Í dag kom ríkissjónvarpið og tók upp einn tónlistartíma með henni Berglindi tónlistarkennara. Það voru yngri börnin á Bakka sem voru í tónlist þá. Þetta verður sennilega sýnt í kvöldfréttum í kvöld. 

Ég var að setja inn nýjar myndir á síðuna en núna voru það bara myndir frá Bóli. Það koma svo fleiri myndir í næstu viku :-)

Góða helgi

kv Bakki og Ból

14.11.2008 11:27

Ótitlað

Loksins Loksins

Var að setja inn matseðilinn og stundaskrár fyrir nóvember inn á síðuna.
Í næstu viku koma nýjar myndir inn.

Góða helgi

kv Bakki og Ból

    Flettingar í dag: 55
    Gestir í dag: 28
    Flettingar í gær: 152
    Gestir í gær: 53
    Samtals flettingar: 364932
    Samtals gestir: 82631
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:40:25

    Vafraðu um

    Um mig

    Nafn:

    Leikskólinn Skerjagarður

    Farsími:

    8221919

    Heimilisfang:

    Bauganes 13

    Staðsetning:

    Skerjafjörður

    Heimasími:

    5518088

    Um:

    Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

    Tenglar