|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Blogg22.12.2008ÓtitlaðKæru foreldrar og börn Við óskum ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári Jólakveðja frá Skerjagarði ps. nýjar myndir í albúminu 15.12.2008ÓtitlaðHæhæ Við viljum bara minna á að á morgunn þriðjudag 16. desember förum við í Neskirkju. Við förum með rútu og fer hún frá leikskólanum klukkan 9:00 stundvíslega þannig að börnin þurfa að vera mætt ekki seinna en kl. 8:45 í leikskólann. Á miðvikudaginn 17. desember fara Meistararnir (skólahópur) aftur í kirkjuna og þá til að horfa á helgileik sem nemendur úr Melaskóla flytja. Þá þurfa þeir að vera mættir í leikskólann ekki seinna en kl. 9:00. kv Bakki og Ból 9.12.2008ÓtitlaðHæhæ Vil viljum byrja á þakka ykkur öllum fyrir frábæra mætingu á jólaballið og æðislegar kræsingar Í þessari viku ( miðvikudag og fimmtudag) verður farið á kaffihús með tvo elstu árgangana (2003 og 2004) á leikskólanum. Þeir ætla að fara í Húsdýragarðinn og fá kakó og kleinur og fara svo og hlusta á jólasögu. Börn fædd 2005 ætla að hafa kaffihúsastemningu hér á leikskólanum á morgunn miðvikudag kl. 9:30 og börn fædd 2006 og 2007 á fimmtudaginn á sama tíma Á þriðjudaginn í næstu viku þ.e. 16.des förum við í Neskirkju. Farið verður með rútu frá leikskólanum. Þar hlustum við á prestinn, syngjum saman og svo fá allir kakó og smákökur áður en haldið er heim aftur. Munið svo að skórinn fer út í glugga á fimmtudaginn 11. desember ps. Myndir frá jólaballinu eru komnar í albúmið. Það eru tvö albúm með myndum í kv Bakki og Ból 2.12.2008ÓtitlaðHæhæ allir Jæja þá erum við komin í jólaskap hér á Skerjó. Við erum byrjuð að syngja jólalögin og gera allskonar jólaskraut. Við höfðum aðventustund á föstudaginn þar sem við kveiktum á fyrsta aðventukertinu þ.e. spádómskertinu og sungum saman ,,Við kveikjum einu kerti á....,,
Við kveikjum einu kerti á...
Við kveikjum einu kerti á, Við kveikjum tveimur kertum á Við kveikjum þremur kertum á Við kveikjum fjórum kertum á; Foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna. Það er kominn matseðill fyrir desember inn á síðuna og einnig stundaskráin fyrir desember. Við settum einnig stundaskránna í hólfin hjá börnunum þannig að allir ættu að hafa fengið eintak og geta því fylgst með þegar eitthvað er um að vera hjá okkur. Nú er búið að breyta morgunmatnum hjá okkur og var þetta fyrsti dagurinn í dag þar sem við vorum einungis með hafragraut í boði og fannst okkur sem flestir væru bara ánægðir með þessa breytingu Stelpudagurinn var hjá okkur í síðustu viku og komu stelpurnar þá fínar í leikskólann. Á Bakka bjuggu strákarnir til hálsmen handa stelpunum og stelpurnar fóru í Gleðigarð og bjuggu til kórónu handa sér. Síðan var slegið upp balli þar sem strákarnir buðu stelpunum upp í dans Á Bóli bjuggu stelpurnar sér til kórónu og voru inni að leika ![]() Það eru líka komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. Kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 202 Gestir í dag: 45 Flettingar í gær: 218 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 240676 Samtals gestir: 52100 Tölur uppfærðar: 4.9.2010 21:40:09 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |