Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2009 Janúar

26.01.2009 11:14

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum minna á strákadaginn sem verður næsta fimmtudag 29.júní. Þá væri gaman ef strákarnir mættu fínir í leikskólann og stelpurnar gera eitthvað skemmtilegt fyrir strákana.

Annars er þemað í fullum gangi.
Eldri börnin á Bakka hafa verið að skoða umferðarmerkin, teikna umferðamynd og farið í göngu um hverfið og skoðað umferðamerkin í hverfinu okkar. 
Yngri börnin á Bakka og eldri á Bóli sem eru að skoða ,,ég sjálfur,, eru byrjuð að skoða augun sín og hafa verið teknar ljósmyndir af þeim og þau geta skoðað sig...hvernig lít ég út?
Yngstu börnin á Bóli hafa verið að vinna með rauða litinn. Rautt ball verður svo haldið á Bóli 6. febrúar.

Næstkomandi fimmtudag 29.jan fara eldri börnin á Bakka í sögustund á Borgarbókasafnið. Þá ætlar bókasafnsfræðingur þar að lesa fyrir okkur sögu (hún ætlar að reyna að finna einhverja umferðasögu).

Við viljum svo minna ykkur á að fara yfir hólf barnanna á hverjum degi og sjá til þess að það séu alltaf þurrir vettlingar (2 pör). Það eru mjög mörg börn sem vantar vettlinga í útiverunni. Einnig að passa upp á að það séu alltaf húfur og viðeigandi skór og auðvitað kuldagalli, regngalli og hlý peysa)emoticon 
 
Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið

kv Bakki og Ból

23.01.2009 13:41

Ótitlað

 Hæhæ

-Þorrablótið heppnaðist alveg rosalega vel í dag hjá okkur. Krakkarnir voru búnir að búa til þorrahatta og mættu mörg börn í lopapeysum og voru mjög þjóðlegemoticon
-Við fengum að smakka á allskyns þorramat t.d. hákarl, súrhval, lundabagga, hrútspunga, súra svínasultu, sviðasultu, slátur, harðfisk og fleira. Börnin voru mjög dugleg að smakka en misjafnt var hvernig þeim fannst maturinn. Sumir fengu sér nokkra bita af hákarl og fannst hann bara góður.
Eftir hádegi héldum við svo þorraball, Bakki og Ból saman. Þar sungum við nokkur lög og síðan dönsuðum við og skemmtun okkur vel.
   

-Við vorum líka svo heppin að það var hringt í okkur frá stöð 2 í morgunn og komu þeir í heimsókn til okkar og tóku upp matartíma hjá elstu börnunum. Þeir spjölluðu við börnin og fylgdust með þegar þau smökkuðu á þorramatnum. Endilega fylgist með fréttum stöðvar 2 í kvöld.

Það eru komnar myndir frá þorrablótinu í myndaalbúmið .

Góða helgi

kv Bakki og Ból

19.01.2009 11:03

Ótitlað

Hæhæ

Jæja þá er ný vika að hefjast og verður nóg að gera í þessari viku. Nú erum við að fara að byrja á fullu í þemastarfi. Á Bakka eru eldri með umferðareglurnar og yngri með ,,ég sjalfur,, og á Bóli eru elstu með ,,ég sjálfur,, og yngri með litina.

Í síðustu viku fóru tveir elstu árgangarnir á Bakka í heimsókn í VÍS (tjónadeild) og fengu þar fræðslu um umferðareglurnar og fengu að sjá bíla sem hafa lent í umferðaóhappi og voru margir bílarnir mikið klesstir.  Í þessari viku ætlum við svo að vinna úr þessari heimsókn.

Í síðustu viku var vasaljósadagur og fannst börnunum mjög gaman að leika með vasljós úti og inni í myrkrinu og heppnaðist sá dagur mjög vel.

Á föstudaginn næsta er svo bóndadagur og þorrinn hefst og ætlum við að hafa þorramat í boði hér á Skerjagarði. Börnin búa til þorrahatta og gaman væri ef þau gætu komið í lopapeysu í leikskólann.

Tónlistin byrjaði aftur síðasta fimmtudag og föstudag og finnst börnunum alltaf jafn gaman að fara í tónlist til hennar Berglindar.

kv Bakki og Ból

13.01.2009 09:41

Nýtt þema og fleira

Hæhæ

Hún Ananda er hætt hjá okkur emoticon . Hún er að fara til Chile í heimsókn og óskum við henni góðrar ferðar og velfarnaðar emoticon .

Nú erum við að fara af stað með nýtt þema á báðum deildum.

-Eldri  hóparnir á Bakka ætla að taka fyrir umferðina. Við ætlum að fara vítt og breytt í að fjalla um umferðina og sjá hvað börnin vilja skoða nánar.
-Á fimmtudaginn 15. janúar förum við í vettvangsferð í VÍS en þar verður tekið á móti okkur og fjallað um ýmislegt sem tengist umferð og umferðaröryggi. 
-Við erum að læra nýtt lag sem tengist umferðinni og er það svona:
                                                
                                        Rauði karlinn (lag. Gamli nói)

Rauði karlinn, rauði karlinn
kallar til þín hér.
Hann biður þig að bíða
best er því að hlýða.
Stans hann segir,
stans hann segir.
Stans og gættu að þér.

 Græna karlinn, græna karlinn
krakkar þekkja flest.
Göngumerkið gefur
gát á öllu hefur.
Yfir götu öll við göngum
glöð í einni lest.

ATH! Ef þið lumið á einhverju skemmtilegu heima sem tengist umferðinni á einn eða annan hátt þá megið þið endilega senda börnin með það í leikskólann t.d. bækur, myndir, hlutir eða hvað sem er.

-Yngri hóparnir á Bakka og elstu börnin á Bóli ætla að taka fyrir,,Ég sjálf(ur) og nánasta umhverfið mitt,,. 

-Yngri börnin á Bóli taka fyrir grunnlitina (gulur, rauður og blár)og vinna með þá. Í lok hvers litar verður haldið litaball emoticon

-Meistararnir fara í heimsókn í Melaskóla mánudaginn 26. janúar kl. 13:30.  Heimsóknin hefst á skólasafninu þar sem börnin fá fræðslu um skólann og hlusta á sögu. Í lokin er svo Selið skoðað.

Tónlistin með Berglindi tónlistarkennara byrjar svo aftur hjá okkur í þessari viku, Ból á fimmtudaginn og Bakki á föstudaginn. Á stundaskránni stóð að hún ætti að byrja í síðustu viku en það breyttist.

Við viljum síðan minna á vasaljósadaginn sem verður næstkomandi fimmtudag. Þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum að fara snemma út þennan dag og leika okkur með vasaljósið í myrkrinu.

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.

Kv Bakki og Ból

02.01.2009 10:11

Ótitlað

Hæhæ

Jæja þá erum við komin á stað aftur eftir gott jólafrí. Við vonum að þið hafið öll haft það rosalega gott um jól og áramót.

Það er komin stundaskrá fyrir janúar inn á síðuna.
Í janúar ætlum við að hafa vasaljósadag en þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum einnig að hafa strákadag. Þá mæta strákarnir fínir í leikskólann og stelpurnar gera eitthvað skemmtilegt fyrir strákana.
Föstudaginn 23. janúar verður svo Þorrahátið. Þá ætlum við að vera þjóðleg og  smakka á þorramat og gaman væri ef börnin mættu í lopapeysu í leikskólann þann dag (þeir sem eiga).

Matseðill fyrir janúar er einnig kominn inn á síðuna
.


kv Bakki og Ból
    Flettingar í dag: 55
    Gestir í dag: 28
    Flettingar í gær: 152
    Gestir í gær: 53
    Samtals flettingar: 364932
    Samtals gestir: 82631
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:40:25

    Vafraðu um

    Um mig

    Nafn:

    Leikskólinn Skerjagarður

    Farsími:

    8221919

    Heimilisfang:

    Bauganes 13

    Staðsetning:

    Skerjafjörður

    Heimasími:

    5518088

    Um:

    Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

    Tenglar