|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Blogg23.2.2009ÓtitlaðHæhæ 16.2.2009ÓtitlaðHæhæ Þá er enn og aftur komin ný vika og nóg að gera hjá okkur á Skerjagarði. Í síðustu viku var nestisdagur hjá okkur og komu flestir með nesti með sér. Við settumst niður inni á deild og borðuðum nestið okkar, kíktum á hvað hinir voru með og skiptumst á nesti :-) ![]() Þemastarf: Umferðin-Börnin kláruðu umferðamerkin sín og voru mjög ánægð með þau. Við bjuggum einnig til umferðaljós með því að stimpla hendurnar okkar á blað ,rautt, gult og grænt. ![]() Ég sjálfur- Börnin teiknuðu inn á líkamann sinn augu og tóku mynd af nefinu sínu og límdu á ![]() Litirnir- Nú eru börnin farin að skoða bláa litinn. Þau skoða ýmislegt sem er blátt og föndra með bláa litinn. Á fimmtudaginn næsta verður dótadagur hjá okkur. Þá mega börnin koma með eitt dót í leikskólann. Það væri mjög gott ef þið merktuð dótið sem börnin koma með. Við viljum einnig minna á að það er ekki í boði að koma með kökur þegar börnin eiga afmæli. Það er í boði að koma með ís, snakk og grænmeti. Þegar líður að afmæli barnanna þá setjum við miða í hólfin þar sem við minnum á hvað er í boði að koma með og viljum við biðja ykkur um að virða það Það eru nýjar myndir í albúminu kv Bakki og Ból 9.2.2009ÓtitlaðHæhæ 2.2.2009ÓtitlaðHæhæ Í síðustu viku var strákadagur og heppnaðist hann mjög vel. Strákarnir mættu fínir og flottir í leikskólann og var ýmislegt gert í tilefni dagsins. Elstu strákarnir á Bakka (2003 og 2004) fóru í strákaferð á bókasafnið og hlustuðu þar á sögu sem heitir Rauða eplið. Þeir vöktu auðvitað athygli því þeir voru allir svo fínir í skyrtu með bindi og sumir í jakkafötum. Fengu þeir síðan að leika á bókasafninu. Síðan var farið og keyptar kleinur og kókómjólk. Eftir hádegið fengu þeir svo að velja hvort þeir vildu vera inni að leika eða úti. Yngri strákarnir og Bakka og strákarnir á Bóli fengu kaffihúsastemmingu í eldhúsinu og fengu allir snúða og mjólk. Á föstudaginn var grímuball á Bakka. Börnin höfðu öll búið til grímur í leikskólanum og var ákveðið að slá upp balli þar sem allir voru með sínar grímur. Miðvikudaginn næsta þ.e. 4.febrúar fara Meistararnir í heimsókn í Melaskóla. Þeir fara þar á bókasafnið, fá að kíkja inn í skólastofu og enda á því að fara í heimsókn í Selið. Farið verður kl. 13:30. Í febrúar ætlum við að hafa Nestisdag (12.feb) þar sem börnin mega koma með nesti að heiman sem þau borða hér í leikskólanum. Einnig hafa börnin mikið verið að spyrja um dótadag og ætlum við að hafa dótadag 19.febrúar. Þá mega börnin koma með eitt dót að heiman (muna að merkja dótið). 25. janúar er svo öskudagur og mega þá allir koma í furðufötum. Þá sláum við ,,köttinn úr tunnunni,, og dönsum saman. Þemastarf: Umferðin- börnin hafa fengið eitt umferðamerki sem þau æfðu sig að teikna og síðan máluðu þau sitt umferðamerki og ætlum við að setja spítu á það þannig að þetta verður ,,alvöru,, umferðamerki. Þau hafa farið í gönguferð og skoðað umferðamerkin og leitað að sínu umferðamerki. Ég sjálfur- Börnin hafa verið að skoða augun sín. Einnig hafa þau verið að teikna líkamann sinn þ.e. strikað eftir útlínum á stórt blað og eiga svo eftir að vinna meira með það. Litirnir- börnin hafa verið að skoða rauða litinn. Þau hafa verið að mála með rauðum lit, skoðað ýmisa hluti í umhverfinu sem eru rauðir og fleira. Á föstudaginn næsta verður svo rautt ball á Bóli og væri gaman ef allir mættu í einhverju rauðu. Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið og stundataflan fyrir febrúar er líka komin inn. kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 226 Gestir í dag: 45 Flettingar í gær: 218 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 240700 Samtals gestir: 52100 Tölur uppfærðar: 4.9.2010 22:01:22 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |