|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Blogg30.9.2009ÓtitlaðHæhæ Munið foreldrafundinn sem verður í kvöld hér á Skerjagarði kl. 20:30. Við munum kynna starfið í vetur og einnig mun starfsfólkið kynna sig. Vonumst við til að sjá sem flesta í kvöld Ból: Á Bóli er fiskahópur enn að vinna með vinaþemað. Börnin máluðu vinasteinana sína sem þau týndu í fjörunni í síðustu viku. Bakki: Börnin á Bakka hafa farið mikið í ferðir í síðustu viku. Elstu börnin fóru í heimsókn í Þjóðleikhúsið og hlustuðu þar á ævintýrið um Búkollu og fengu síðan að skoða leikhúsið. Yngri börnin á Bakka (fædd 2005) fóru í Norræna húsið á kvikmyndasýningu þar sem þau horfðu á stuttmyndir-teiknimyndir. Í Norræna húsinu Í Þjóðleikhúsinu Einnig fóru elsu börnin í KR heimilið í dag miðvikudag og fóru þar í hreyfingu. Við höfum fengið salinn þar að láni og munum fara þangað annahvern miðvikudag með elstu börnin í hreyfingu og leiki. Hreyfing í KR heimilinu kv Bakki og Ból 25.9.2009ÓtitlaðViðbragðsáætlun Skerjagarðs vegna inflúensunar er komin inn á heimasíðuna. Þið farið í ,,skrár,, og þar er hægt að nálgast hana :) 23.9.2009ÓtitlaðHæhæ Við viljum byrja á að minna á foreldrafundinn sem verður haldinn miðvikudaginn 30. september kl. 20:30 :) Starfsfólk kynnir sig og kynning verður á starfinu í vetur. Veitingar í boði :) Gunnar Leifur ljósmyndari kom í dag og tók myndir af börnunum. Gekk myndatakan mjög vel. Hann tók mynd af öllum börnunum og fá foreldrar síðan sýnishorn af myndunum (vonandi í næstu viku) og geta þá ákveðið hvort þeir vilja kaupa myndina eða ekki :) Börnin á Bóli í myndatöku Bakki: Nú er vinaþemað á enda hjá okkur á Bakka og förum við fljótlega að finna okkur nýtt þema til að skoða :) Við enduðum vinaþema með vinaballi og var mjög mikið fjör á ballinu. Vinaball á Bakka :) Ból: Eldri börnin á Bóli eru enn að vinna með vinaþemað. Í gær fór fiskahópur í fjöruna að tína steina til að mála :) Yngri börnin fóru í gönguferð út á skógarróló að leika og hafa síðan verið í könnunarleik og leik inni og úti. Á Bóli var líka vinaball í síðustu viku og skemmtu allir sér mjög vel :) Vinaball á Bóli Í fjörunni Úti á skógarróló ATH! Nýjar myndir í myndaalbúminu :) kv Bakki og Ból 16.9.2009ÓtitlaðHæhæ Nú er mjög blautt í veðri og gaman að leika úti í pollunum. Börnin koma mjög blaut inn úr útiverunni og vantar allt of oft aukaföt í hólfin hjá þeim -Við viljum minna á ljósmyndarann sem kemur miðvikudaginn 23. september og tekur mynd af börnunum ykkar. 9.9.2009Hæhæ Flettingar í dag: 202 Gestir í dag: 45 Flettingar í gær: 218 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 240676 Samtals gestir: 52100 Tölur uppfærðar: 4.9.2010 21:40:09 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |