Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Blogg

28.10.2009

Ótitlað

Hæhæ

Næstkomandi föstudag 30.október kemur íþróttaálfurinn í heimsókn til okkar á Skerjagarð. Hann kemur kl. 9:30 og þurfa því börnin að vera mætt fyrir þann tíma til að missa ekki af honum emoticon 
Börnin mega mæta í íþróttaálfabúning eða í íþróttafötum þennan dag og sjáum við til þess að þetta verði góður íþróttadagur. 





Eldhúsið
Hún Mumbi okkar er komin í fæðingarorlof og hefur hann Óli tekið við að elda handa okkur næstu 2-3 mánuðina.

Ból
Fiskahópur hefur verið að æfa sig í fínhreyfingum og verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið.
Yngri börnin hafa verið dugleg í myndsköpun, í könnunarleik og svo eru þau líka mjög dugleg að leika úti.
 
Könnunarleikur

Bakki
Í síðustu viku fóru elstu börnin í heimsókn á Árbæjarsafn að skoða sýningu sem heitir ,,Komdu að leika,,. Þar fengu börnin að sjá dót sem var vinsælt í ,,gamla daga,, og fengu þau að leika með það. Þar voru líka allskyns búningar sem þau mátuðu og gerðu leikrit.
 
Á Árbæjarsafninu sýning ,,Komdu að leika,,

Elstu börnin eru að vinna með ævintýrin og eru þau búin að velja sér ævintýri sem þau ætla að setja upp. Þau hafa ákveðið að vinna með ævintýrið um Gullbrá og birnina þrjá og Grísirnir þrír.
 
,,Gullbrá og birnirnir þrír,,

Yngri börnin á Bakka hafa verið að æfa sig í fínhreyfingum. Þau eru einnig að vinna með fjölskylduna sína. Þau hafa líka verið mjög dugleg að fara í gönguferðir um hverfið.

Í síðustu viku var furðufataball og var gaman að sjá hvað börnin voru í skemmtilegum búningum og skemmtu sér vel. Slegið var upp furðufataballi á Bakka og farið var í ýmsa leiki. 
 
Furðufatadagur

Alþjóðlegi bangsadagurinn var í gær þriðjudag og máttu börnin koma með bangsa með sér í leikskólann. Mörg börn mættu með bangsa með sér.
 
Alþjóðlegi bangsadagurinn

ATH! Við vorum að breyta atriðum í skóladagatalinu fyrir veturinn 2009-2010 sem er hér inni á heimasíðunni.
    • Foreldraviðtölin verða á Bakka fimmtudaginn 5 nóvember og föstudaginn 6. nóvember og á Bóli þriðjudaginn 10. og miðvikudaginn 11. nóvember.
    • Jólaballið var skráð 11. desember en það verður 4. desember í Frostaskjóli.
    • Einnig færðum við kaffihúsadagana aftur um eina viku þar sem jólaballið færðist fram um eina viku.

  • Stundatafla fyrir nóvember er komin inn á heimasíðuna.
  • Einnig eru nýjar myndir í  myndaalbúminu
      KV Bakki og Ból


Skrifað 28.10.2009 kl. 11:44 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

26.10.2009

Ótitlað



Munið bangsadaginn á morgunn þriðjudag. Þá mega börnin koma með bangsa í leikskólann
emoticon 
   

Skrifað 26.10.2009 kl. 19:37 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

13.10.2009

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum bara minna á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 23. október og mánudaginn 26. október vegna skipulags- og námskeiðsdags.

kv Bakki og Ból

Skrifað 13.10.2009 kl. 19:37 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

7.10.2009

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir góða mætingu á foreldrafundinn emoticon emoticon emoticon emoticon emoticon

Á morgunn fimmtudag 8. október verður gleraugnadagur í leikskólanum. Þá mæta allir með gleraugu í leikskólann, það geta verið t.d. sólgleraugu, sundgleraugu eða hvernig gleraugu sem er emoticon

Næsta föstudag verður vinastund á Bóli. Þá koma krakkarnir af Bóli og Bakka saman og syngja nokkur lög saman.  Einnig munu eldri börnin á Bóli syngja eitt lag fyrir hin börnin sem þau eru búin að æfa emoticon

Ból:
Fiskahópur á Bóli er enn að vinna með vinaþemað. Þau eru búin að mála og skreyta vinasteinana sína. Þau hafa einnig verið mjög dugleg að fara í gönguferðir um hverfið. Yngri börni hafa einnig farið mikið í gönguferðir. Deltasandurinn er líka vinsæll hjá litlu krílunum okkar á Bóli.
                    
Leikið með Deltasand

Bakki:
Elstu börnin á Bakka (Snillingarnir) hafa ákveðið taka fyrir eitthvað ævintýri, æfa það og leika og útbúa allt sem því tilheyrir þ.e. búninga, leikmuni og þess háttar. Þessi hugmynd kom í kjölfarið af heimsókninni í Þjóðleikhúsið sem þau fóru í um daginn. Þau voru mjög áhugasöm og spennt eftir að hafa farið í heimsóknina og var ákveðið að fara út í leikræna tjáningu. Þau fóru á bókasafnið í síðustu viku og tóku fullt af bókum með ævintýrum sem þau eru að lesa og ákveða síðan hvaða ævintýri þau ætla að vinna með.
Við höfum einnig verið að fylgjast með yngri börnunum á Bakka og athuga hvort það sé eitthvað sem þau eru að sýna áhuga á. Við höfum ekki enn ákveðið hvað næsta viðfangsefni verður en ætlum núna að fara að vinna aðeins með fjölskylduna okkar emoticon
 
Á bókasafninu í Gerðubergi

Hann Sigurvin frá kirkjunni kom í heimsókn til okkar síðasta föstudag. Hann spjallaði aðeins við okkur, við sungum saman og svo kom hann með allskonar ,,dýr,, (t.d. hund, Rebba ref og fleiri) sem við fengum að heilsa upp á emoticon

                 Sigurvin í heimsókn á Bakka og Bóli

Það eru nýjar myndir í albúminu
emoticon

ps. Það væri rosa gaman að heyra frá ykkur í gestabókinni emoticon

kv Bakki og Ból

Skrifað 7.10.2009 kl. 11:03 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 226
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 240700
Samtals gestir: 52100
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 22:01:22

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar