|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2009 Nóvember25.11.2009 11:41ÓtitlaðHæhæ Nú er farið að kólna í veðri og viljum við biðja ykkur að fara vel yfir hólfin hjá börnunum og athuga hvort það vanti einhvern útifatnað. Það þurfa að vera tvö pör af hlýjum vettlingum (helst prjónavettlingar sérstaklega fyrir yngstu börnin þar sem þau eiga í erfiðleikum með að leika með þykkar lúffur), húfur, hlý peysa, kuldaskór og kuldagalli. Einnig er nauðsynlegt að hafa pollagallann og stígvél. Jæja þá er jólaundirbúningur í fullum gangi hér á Skerjó. Við erum farin að æfa okkur að syngja jólalögin fyrir jólaballið sem verður föstudaginn 4. desember kl. 14:00 í Frostaskjóli. Foreldar koma og sækja börnin ekki seinna en klukkan 13:00. Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna fólkið . Leikskólinn sér svo um drykki handa öllum. ![]() ![]() ![]() Föstudaginn 11. des verður svo Jólavinastund á Bóli og jólahúfudagur og mega börnin þá koma með jólasveinahúfu í leikskólann. Elstu tveir árgangarnir fara í kaffihúsaferð í Grasagarðinn mánudaginn 7. desember. Yngri börnin (2005) fara f.h. og eldri börnin (2004) fara e.h. Við munum einnig fara í húsdýragarðinn og leika okkur þar. Börn sem fædd eru 2006-2008 fara á kaffihús í Skerjagarði miðvikudaginn 9. desember. Við munum breyta eldhúsinu okkar í kaffihús og fá heitt kakó og nýbakaðar muffins sem við ætlum að baka mánudaginn 7. des og þriðjudaginn 8 des. Þriðjudaginn 15. desember fara börn sem fædd eru 2004-2006 í kirkjuna. Það kemur rúta að sækja okkur og tekur hann Sigurvin á móti okkur þar. Fimmtudaginn 17. desember er elstu börnunum boðið að koma aftur í kirkjuna og horfa á börn í 4. bekk Melaskóla sýna helgileik. Þriðjudaginn 22. desember verður svo foreldrakaffi klukkan 14:30 og er það síðasti dagur fyrir jólafrí. ![]() Leikskólinn verður svo lokaður á þorláksmessu og á milli jóla og nýárs. Við opnum aftur mánudaginn 4. janúar. ATH!!! Á morgunn fimmtudag verður svo náttfataball og mega börnin þá koma í náttfötum og með bangsa með sér. kv Bakki og Ból 18.11.2009 11:11ÓtitlaðHæhæ Á fimmtudaginn í síðustu viku var heilsuskokk og hlupu börnin smá hring og fengu síðan ávexti á eftir. Það er alltaf jafn hressandi að hlaupa Á föstudaginn síðasta var vinastund á Bakka og komu börnin á Bóli upp til okkar og sungu við saman nokkur lög. Elstu börnin á Bakka enduðu svo vinastundina á að syngja ,,Myndina hennar Lísu,, fyrir okkur. Vinastund á Bakka Elstu börnin syngja fyrir okkur Á Bakka og Bóli er jólaundirbúningur í fullum gangi. Við erum að föndra, búa til jólagjafir,jólakort og jólapappír. Við erum aðeins farin að syngja jólalögin og komast allir í jólaskap við það. Börnin endurvinna pappír -Jólaferðin í Árbæjarsafnið sem auglýst var á stundatöflunni mánudaginn 30.nóvember verður ekki þann dag heldur færist hún til þriðjudagsins 8. des. Það eru nokkrar nýjar myndir á heimasíðunni kv Bakki og Ból 11.11.2009 11:36ÓtitlaðHæhæ Íþróttaálfurinn kom í heimsókn til okkar og gerði með okkur nokkrar æfingar og spjallaði við krakkana. Skemmtu börnin sér vel og fannst mjög gaman að hitta íþróttaálfinn. Ból Á Bóli eru börnin að byrja að föndra jólaföndur :) Annars höfum við verið dugleg að vera úti að leika og farið í gönguferðir. Hreyfingin er alltaf á sínum stað og finnst börnunum mjög gaman í hreyfingunni. Eldri börnin fara alltaf í val tvisvar sinnum í viku og einnig er mikið spilað. Eldri börnin á Bóli í vali Spilað á Bóli Bakki Yngri börnin á Bakka- eru búin að klára fjölskyldumyndirnar og eru þær mjög flottar og skemmtilegar eins þið eruð mörg búin að fá að sjá :) Annars erum við núna byrjuð að föndra fyrir jólin og búa til endurunninn pappír. Við höfum líka verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið og eru börnin mjög dugleg að ganga. Yngri börn í gönguferð Börnin rífa niður dagblöð í endurunninn pappír Eldri börnin á Bakka- Hafa farið mikið út fyrir leikskólann og skoðað. Þau fóru á listasýningu Yosimtoma Nara og skoðuð skemmtileg verk þar (sjá myndaalbúm) Á listasýningunni Yosimtoma Nara Þau fóru einnig að skoða Hallgrímskirkju og voru þau mjög áhugasöm um kirkjuna. Þegar þau komu heim þá fóru nokkrir krakkar í einingakubbana og byggðu kirkjuna úr þeim :) Hallgrímskirkja Skólahópurinn fékk einnig heimsókn frá slökkviliðinu sem fræddu börnin um reykskynjara og fleira. Þau fengu að horfa á fræðslumynd um eldsvoða, og síðan fengu þau að fara út og skoða sjúkrabílinn og heyra sírenuvælið Slökkviliðið í heimsókn Matseðillinn er kominn inn á síðuna og nýjar myndir í albúmið :) kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 55 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364932 Samtals gestir: 82631 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:40:25 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |