Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Blogg

9.12.2009

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum byrja að þakka ykkur fyrir frábæra mætingu á jólaballið síðastliðinn föstudag og takk fyrir allar kræsingarnar emoticon
 
        Jólaveinninn                     Dansað í kringum jólatréið

Það er búið að vera nóg um að vera hjá skólahópnum okkar síðustu daga. Á mánudaginn fóru þau í Grasagarðinn á kaffihús.
 

Í gær þriðjudag fóru þau svo í Árbæjarsafnið að skoða allt gamla dótið og fengu þau einnig fræðslu í leiðinni.
 

Í dag miðvikudag fóru þau svo í KR heimilið í íþróttir
 

Börnin á Bóli og yngri börnin á Bakka voru svo dugleg að baka muffins fyrir kaffihúsið.
 

Börnin á Bóli og börn fædd 2006 á Bakka fóru í dag á ,,kaffihúsið,, á Skerjagarði og fengu muffins og safa.
 
Kaffihúsastemming á Skerjó

Eins og áður sagði breyttist kaffihúsaferðin hjá yngri börnunum (2005) á Bakka. Þau fara í Grasagarðinn næstkomandi föstudag 11. des. f.h. Það gæti því verið að vinastundin breytist eitthvað þ.e. að hún verði á morgunn fimmtudag eða seinna um daginn á föstudaginn.

Munið!!! Jólahúfudagur verður á föstudaginn. Þá mæta allir með jólasveinahúfur :)

ATH!! Á morgunn ætlum við að hafa brunaæfingu á leikskólanum og viljum við biðja ykkur foreldra um passa upp á að það séu auka sokkar hjá börnunum ykkar því að við þurfum að fara út á sokkunum.

kv Bakki og Ból

Skrifað 9.12.2009 kl. 13:59 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

2.12.2009

Ótitlað

Hæhæ

Jólaballið

Við viljum byrja á að minna ykkur á jólaballið sem haldið verður næstkomandi föstudag 4. desember. Jólaballið byrjar klukkan 14:00 og viljum við biðja ykkur um að sækja börnin um kl. 13:00 (ekki seinna en 13:30). Jólasveinninn mun svo kíkja á okkur um klukkan 14:15.
Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna og foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin. Afar, ömmu og systkini eru velkomin að koma með og eiga skemmtilega stund með okkur. 
                                         

Kaffihúsaferðin í Grasagarðinn 7. desember hjá Bakka breytist aðeins. Það var hringt í okkur frá Grasagarðinum og þær höfðu tvíbókað fyrir hádegi þann 7. des. þannig að börn sem fædd eru 2005 (og áttu að fara þann 7.des f.h) fara á kaffihús í Grasagarðinum 11. desember í staðinn. Elstu börnin (2004) fara 7. desember eftir hádegi eins og stendur á stundatöflunni.

Annars eru allir komnir í jólaskap hér á Skerjó. Við erum í rólegheitum að búa til jólaskraut og syngja jólalögin.
   
            Jólaföndur                      Aðventustund á Bakka

Matseðill fyrir desember er kominn inn á heimasíðuna

kv Bakki og Ból

Skrifað 2.12.2009 kl. 10:19 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 226
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 240700
Samtals gestir: 52100
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 22:01:22

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar