|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2010 Febrúar24.02.2010 10:47ÓtitlaðHæhæ Við viljum byrja á að minna á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 26. febrúar vegna námskeiðsdags starfsfólks. Á morgunn fimmtudag 25. febrúar verður dótadagur og mega börnin þá koma með eitt dót í leikskólann. Munið að merkja dótið :) Tröllaþema: Börnin hafa verið að búa til ýmislegt í tengslum við tröllaþemað. Börnin á Bóli eru að búa til tröllagrímur. Börnin á Bakka hafa verið að teikna tröllamyndir á glærur, búa til tröll úr verðlausum efnivið og margt fleira skemmtilegt. Teiknað á glærur Búið til Tröllagrímur Við höfum einnig verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið og skoða ,,tröllasteina,,. Börnin á Bóli að finna tröllastein Yngri börnin á Bakka (2005 og 2006) og elstu börnin á Bóli (2006) fóru í strætóferð upp í Gerðuberg. Þar skoðuðum við tvær sýningar sem voru í gangi. 1) ,,Þetta vilja börnin sjá,, er sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum sem komu út 2009. 2) ,,Strengir,, er sýning á leikbrúðum, grímum og búningum Messíönu Tómasdóttur frá nokkrum sýningum Strengjaleikhússins um þriggja áratuga skeið. Gerðuberg ps. það eru nýjar myndir í myndaalbúminu. kv Bakki og Ból 17.02.2010 11:18ÓtitlaðHæhæ Í dag er öskudagur og er búið að vera mikið fjör hjá okkur. Börnin mættu öll í skemmtilegum búningum og hittumst við svo öll niðri á Bóli og sungum saman nokkur lög og slógum ,,poppið úr öskupokanum,, Poppið slegið úr pokanum Skemmtilegir búningar Í gær þriðjudag fór skólahópurinn í heimsókn í Borgarleikhúsið. Það var mjög skemmtileg ferð og margt að skoða. Börnin voru alveg til fyrirmyndar í ferðinni og var haft orð á því hversu stillt og prúð þau voru og erum við mjög stollt af þeim Börnin fengu að prófa allskonar leikmuni Annars er tröllaþema ennþá í fullum gangi og ýmislegt brallað í kringum það Fjallið málað Leikritið um Búkollu Við viljum enn og aftur minna á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 26. febrúar en þá er námskeiðsdagur hjá starfsfólki. Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu. kv Bakki og Ból 10.02.2010 11:51ÓtitlaðHæhæ 05.02.2010 10:43ÓtitlaðHæhæ Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í tröllaþema bæði á Bakka og Bóli. Það er ýmislegt búið að vera að gera t.d. að æfa tröllaleikrit, teikna tröllamyndir, búa til tröllafjall og fleira skemmtilegt. Skólahópurinn okkar fór í heimsókn í Melaskóla á miðvikudaginn. Það var lesin saga fyrir þau á bókasafninu og voru þau auðvitað öll til fyrirmyndar. Síðan fengu þau að fara heim með skólabílnum. Í gær fimmtudag var spiladagur og var það mjög skemmtilegt. Við spiluðum allan morguninn og skiptust börnin á að spila saman. Það er alltaf gaman að læra ný spil :) Hann Sigurvin frá kirkjunni kom í heimsókn til okkar í dag föstudag. Við sungum saman, hann sagði okkur mjög skemmtilega sögu og svo komu Rebbi refur og Mýsla í heimsókn líka :) Við viljum síðan minna ykkur á að fara yfir hólf barnanna ykkar í lok hvers dags og athuga hvort það séu ekki örugglega hreinir vettlingar í hólfunum og taka óhreina vettlinga með heim, kíkja líka í þurrkskápinn. Það hefur verið allt of mikið um það að börnin séu ekki með vettlinga eða þá að vettlingarnir hafa verið svo óhreinir og rakir frá því daginn áður að það er ekki hægt að fara í þá. Einnig viljum við biðja ykkur um að taka með pollagalla heim á föstudögum :) kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 55 Gestir í dag: 28 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364932 Samtals gestir: 82631 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:40:25 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |