Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2010 Mars

31.03.2010 11:43

Ótitlað

Hæhæ

Í síðustu viku var kósýdagurinn hjá okkur og mættu börnin í náttfötum og með bangsa og sum með koddana sína og teppi. Þetta var ótrúlega mikill kósýdagur :)
 
                      Kósýdagur á Bóli og Bakka

Síðustu daga höfum við verið að föndra allskonar páskaföndur
 
                        Páskaföndur á Bakka og Bóli

Stundaskráin fyrir apríl er komin inn á heimasíðuna. Það verður margt að gerast hjá okkur í apríl. Elstu börnin (2004) fara í umferðaskólann og á sýningu í Gerðuberg ásamt næst elsta hópnum (2005). Það verður útidótadagur í lok apríl og mega börnin þá koma með eitthvað útidót í leikskólann.

Hinn árlegi hreinsunardagur verður svo 24. apríl en þá verður tekið til hendinni í garðinum og hann gerður fínn fyrir sumarið.

Opið hús og útskrift elstu barnanna verður svo 1. maí kl. 10-12.

GLEÐILEGA PÁSKA

ps. nýjar myndir í albúminu

kv Bakki og Ból


24.03.2010 10:04

Ótitlað

Hæhæ

Á morgunn fimmtudag verður kósýdagur á Skerjó. Þá mega börnin mæta í náttfötum, með bangsa, kodda og/eða eitthvað sem þeim þykir kósý :)

Nú fer að styttast í páskana og erum við byrjuð að föndra ýmiskonar páskaföndur. 
 
Páskaföndur á Bakka
 
Skólahópurinn fór í heimsókn í Melaskóla í síðustu viku og fengu að fara í leikfimistíma með krökkunum þar.
 
Í leikfimistíma í Melaskóla

Skólahópurinn er byrjaður að æfa þúsaldaljóðið sem þau munu flytja á útskriftinni og er eitt erindið um ,,eldinn,,. Það hefur mikið verið spáð í eldinn og eldgos eftir að það byrjaði að gjósa í Eyjafjallajökli um helgina og hafa þau teiknað svakalega flottar eldfjallamyndir :)
 

kv Bakki og Ból

18.03.2010 11:25

Ótitlað


ATH!!!

Breytingar á skóladagatali:
Hreinsunardagurinn sem átti að vera 1. maí verður laugardaginn 24. apríl og opið hús og útskrift elstu barnanna verður laugardaginn 1.maí en ekki laugardaginn 8.maí eins og stóð í skóladagatalinu.

Við ákváðum að breyta þessu þar sem margir foreldrar hafa talað við okkur og beðið okkur um að breyta þar sem margt er í gangi þessa helgi (þ.e. 8 maí).


kv Skerjó

17.03.2010 10:30

Ótitlað

Hæhæ


Tröllaþema:
Enn er verið að vinna með tröllaþemað og eru elstu börnin að búa til tröll úr verðlausum efnivið. Yngri börnin eru að klára tröllagrímurnar sínar.
 
Tröll úr verðlausum efnivið

Í gær þriðjudag fórum við í skemmtilega ferð í Reykjanesbæ. Við fórum af stað kl. 10 og komum aftur heim um kl. 14. Þannig að þetta var löng og skemmtileg ferð. Við fórum að skoða ,,Helli skessunnar,,. Þetta var mjög skemmtilegt og ævintýri líkast fyrir börnin að fá að sjá og heyra í skessunni og prófa að leggjast í stóra rúmið hennar. Við tókum með okkur nesti og fengum að borða það hjá bátasafninu í Duushúsi þar sem veðrið lék ekki við okkur.
 
Það eru fullt af myndum frá ferðinni í myndaalbúminu !!!!

Síðastliðinn fimmtudag var gleraugnadagur og komu börnin með margskonar gleraugu í leikskólann
 
Gleraugnadagur

ATH!!!
Við viljum biðja ykkur um að fara vel yfir hólfin hjá börnunum ykkar og taka með blauta og skítuga vettlinga heim og koma með hreina og þurra vettlinga aftur í leikskólann. Það er frekar óþægilegt að fara í blauta og skítuga vettlinga út að leika og leikskólinn á ekki auka vettlinga til að lána. Eins er gott að skoða hvernig pollagallarnir líta út og taka með heim og þvo.

Í næstu viku (fimmtudag 25.mars) ætlum við að hafa kósýdag og mega börnin þá koma í náttfötum, með kodda, teppi, bangsa eða bara það sem þeim finnst vera kósý emoticon

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.

kv Bakki og Ból

10.03.2010 13:17

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum byrja á að minna á gleraugnadaginn sem verður á morgunn fimmtudag. En þá mæta allir með gleraugu í leikskólann. Það geta verið sólgleraugu, sundgleraugu eða hvernig gleraugu sem er emoticon
.

Tröllaþema:
Börnin eru að klára ýmis verkefni sem þau eru að gera í tengslum við tröllaþemað t.d. grímur og tröll úr verðlausum efnivið og fleira skemmtilegt. 
 
Fiskahópur og Kisuhópur í hópastarfi

Hreyfing: 
Hreyfingin er alltaf á sínum stað bæði á Bakka og á Bóli. Börnin eru mjög dugleg og áhugasöm.
 
Hreyfing hjá Bakka og Bóli

Skólahópurinn fór í heimsókn í Selið í Melaskóla á föstudaginn síðastliðinn. Var það mjög gaman og voru börnin mjög stillt og prúð í heimsókninni.
 

Það eru komnar fullt af nýjum myndum inn í myndaalbúmið.

kv Bakki og Ból

08.03.2010 12:59

Ótitlað

Hæhæ

Matseðill fyrir mars mánuð er kominn á heimasíðuna emoticon

03.03.2010 11:11

Ótitlað

Hæhæ

Jæja þá er snjórinn loksins kominn til okkar og er búið að vera gaman að leika úti síðustu daga.

  

Tröllaþema. Yngri börnin (2005 og 2006) eru að búa til tröllagrímur. Eldri börnin eru að búa til tröll úr verðlausum efnivið.
 

Í síðustu viku var dótadagur og er hann alltaf jafn vinsæll hjá bönunum. Þá komu börnin með dót að heiman og léku sér saman með það.

ps. Það eru nýjar myndir í myndaalbúminu.

kv Bakki og Ból

    Flettingar í dag: 55
    Gestir í dag: 28
    Flettingar í gær: 152
    Gestir í gær: 53
    Samtals flettingar: 364932
    Samtals gestir: 82631
    Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:40:25

    Vafraðu um

    Um mig

    Nafn:

    Leikskólinn Skerjagarður

    Farsími:

    8221919

    Heimilisfang:

    Bauganes 13

    Staðsetning:

    Skerjafjörður

    Heimasími:

    5518088

    Um:

    Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

    Tenglar