|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Blogg28.4.2010ÓtitlaðHæhæ Opið hús og útskrift elstu barnanna verður laugardaginn 1. maí kl 10-12. Útskriftin hefst um kl. 11.00 þá mun útskriftarhópurinn syngja nokkur lög fyrir okkur. Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar hafa komið með veitingar á hlaðborð. Foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna og foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin. Skerjagarður mun svo sjá um drykki. Vonumst til að sjá sem flesta :) Bestu kveðjur Skerjagarður 21.4.2010ÓtitlaðHæhæ Hreinsunardagurinn sem átti að vera næstkomandi laugardag (24.apríl) verður aflýst. Við ætlum að reyna að hittast einhvern laugardag í maí þegar veðurspáin verður góð. Við munum auglýsa það með stuttum fyrirvara. Börn sem fædd eru 2004 og 2005 fóru í síðustu viku á sýningu í Gerðubergi sem heitir Krummi krunkar úti. Þetta var mjög skemmtileg sýning þar sem börnin tóku þátt. Þau voru búin að búa til krummagrímur og æfa nokkur krummalög fyrir sýninguna. Krummar á krummasýningu Við viljum minna ykkur á að koma með viðeigandi útifatnað á börnin. Það eru margir sem eru ekki með stígvél eða pollagalla þegar það rignir, en það er nauðsynlegt að hafa þennan fatnað alltaf með. Það vantar einnig húfur hjá mörgum og líka vettlinga. Opið hús og útskrift elstu barnanna sem verður laugardaginn 1. maí frá kl. 10-12. Sá háttur hefur verið hafður á að foreldrar hafa komið með bakkelsi sem sett er á sameiginlegt hlaðborð. Foreldrar barna á Bakka hafa komið með bakkelsi fyrir fullorðna fólkið og foreldrar barna á Bóli hafa komið með bakkelsi fyrir börnin. Skerjagarður hefur svo skaffað drykki. Hlaðborð á opnu húsi 2009. Kv. Bakki og Ból 13.4.2010ÓtitlaðHæhæ Jæja þá er tröllaþema á enda hjá okkur og eru börnin búin að læra margt um tröllin og búa til ýmislegt í kringum þau. Þau hafa t.d. teiknað tröllamyndir, búið til tröllaleikrit, tröllahelli, tröll úr verðlausum efnivið, tröllagrímur og margt fleira. Flottar tröllskessur hjá stelpunum :) Hreyfingin er alltaf á sínum stað. Elstu börnin fara í KR heimilið einu sinni í viku og yngri börnin fara í hreyfingu í kjallaranum með Jurate eða Tinnu. Börnin í hreyfingu í kjallaranum Umferðaskólinn kom í heimsókn til okkar ásamt börnum frá Sælukoti en þau komu á Skerjagarð til að vera með í umferðaskólanum. Þar lærðu börnin allar helst umferðareglurnar og fengu að horfa á skemmtilega bíómynd. Á morgunn miðvikudag fara börn sem fædd eru 2004 og 2005 í Gerðuberg á sýningu sem heitir ,,Krummi krunkar úti,,. Börnin hafa verið að læra ýmsar krummavísur og búið til krummagrímur í tengslum við þessa ferð. Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið. kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 226 Gestir í dag: 45 Flettingar í gær: 218 Gestir í gær: 51 Samtals flettingar: 240700 Samtals gestir: 52100 Tölur uppfærðar: 4.9.2010 22:01:22 |
Vafraðu umEldra efni Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |