Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Blogg

26.5.2010

Ótitlað

Hæhæ

Á morgunn fimmtudag verður nestisdagur á leikskólanum og mega börnin koma með nesti að heiman. Við ætlum að fara í nestisferð í næsta nágrenni og borða nestið okkar þar :)
Börn sem fædd eru 2006 fara á morgunn í óvissuferð og taka nestið sitt með :)

Við viljum líka minna ykkur á að skrá ykkur í sveitaferðina sem farið verður á föstudaginn. Skráningarblað hangir uppi á töflunum í fataklefanum hjá Bakka og fyrir framan Ból.

Í síðustu viku fóru börn sem fædd eru 2005 í menningarferð í Norræna húsið. Þau fóru að skoða tilraunalandið þar. 
  
Tilraunalandið

Skólahópurinn endaði veturinn í KR heimilinu með því að fara í heita pottinn þar og skemmtu þau sér mjög vel þar.

Í heita pottinum í KR heimilinu

Einnig höfum við verið mikið úti að leika í ýmsum leikjum
 
Útileikir

kv Bakki og Ból




Skrifað 26.5.2010 kl. 11:34 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

19.5.2010

Ótitlað

Hæhæ

Á föstudaginn 14.maí var heilsuskokk hjá okkur og voru börnin mjög dugleg að hlaupa. Þegar þau voru búin að hlaupa fengu allir ávexti á eftir emoticon
 
                             Heilsuskokkið

Skólahópurinn fór í Tilraunalandið í Norrænahúsinu í gær og var það mjög skemmtilegt.
 
                            Tilraunalandið

Við erum mikið úti að leika þessa dagana. Það er alltaf gaman að sulla í pollunum eða leika með nýja sumardótið emoticon
 
                         Gaman úti að leika

Það eru nýjar myndir í albúminu

kv Bakki og Ból

Skrifað 19.5.2010 kl. 10:59 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

12.5.2010

Ótitlað

Hæhæ

Nú er kominn tími fyrir sólarvörn. Við viljum biðja ykkur um að bera sólarvörn á barnið ykkar áður en það kemur í leikskólann á morgnanna. Einnig viljum við biðja ykkur um að koma með sólarvörn og geyma í hólfinu  hjá barninu (muna að merkja). Við munum svo bera á þau eftir hádegi á sólardögum.

Einnig viljum við biðja ykkur um að koma með létta skó á börnin nú þegar það eru farið að vera þurrt og hlýtt úti. Auðvitað þurfa stígvélin líka að vera með alla daga.

Á mánudaginn 10. maí og þriðjudaginn 11. maí fóru börn sem fædd eru 2004 og 2005 í Húsdýragarðinn. Þar skoðuðu þau dýrin, vísindatjaldið og léku sér í leiktækjunum. Síðan voru grillaðar pylsur og skemmtu sér allir rosa vel emoticon
 
                    Gaman í húsdýragarðinum

Nú þegar sumarstarfið er hafið erum við mikið úti og munum við reyna að nýta næsta nágrenni til að leika. Það eru tveir rólóar í göngufæri og svo er mjög stutt að labba niður í fjöru. Einnig eru tveir stórir grasblettir nálægt okkur þar sem hægt er að fara í ýmsa leiki og boltaleiki.
Við höfum tekið fram fullt af nýju sumardóti sem skemmtilegt er að leika með úti t.d. húllahringi, krítar, sápukúlur og fleira.
 
       Úti á ,,skógarróló,,        Leikið með sumardót

Á föstudaginn verður svo Heilsuskokk og munum börnin þá hlaupa smá hring og fá svo ávexti í verðlaun emoticon

Það eru komnar nýjar myndir í myndalbúmið

kv Bakki og Ból

Skrifað 12.5.2010 kl. 10:21 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

5.5.2010

Opið hús

Hæhæ

Við viljum þakka ykkur fyrir frábæra mætingu og flottar veitingar á opna húsinu og útskriftinni síðastliðinn laugardag. Að vanda fengum við frábært veður og var dagurinn yndislegur í alla staði.


           Útskriftarhópurinn 2010

 
                              Opna húsið

Nú eru foreldraviðtölin að hefjast.
Bakki er með foreldraviðtöl á morgunn fimmtudag 6 maí og föstudaginn 7.maí.
Ból er með foreldraviðtöl á þriðjudaginn 11.maí og miðvikudaginn 12. maí
Það hangir uppi skráningarblað á töflunum þar sem þið getið skráð ykkur í viðtal.

Sumarstarfið er nú byrjað á Bakka og á Bóli og erum við farin að vera meira úti að leika.
Aðlaganir eru einnig byrjaðar á Bóli fyrir næsta vetur.

ps. Matseðillinn fyrir maí mánuð og myndir frá opna húsinu eru komnar inn.

kv Bakki og Ból

Skrifað 5.5.2010 kl. 11:09 af

Bein slóð á færslu

Engin álit, smelltu til að skrifa álit

Fara á upphafssíðu

Flettingar í dag: 226
Gestir í dag: 45
Flettingar í gær: 218
Gestir í gær: 51
Samtals flettingar: 240700
Samtals gestir: 52100
Tölur uppfærðar: 4.9.2010 22:01:22

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar