Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

20.08.2008 10:22

Sumarfríið búið

Hæhæ

Jæja þá er sumarfríið á enda og allir komnir aftur á Skerjagarð. Við höfum farið rólega af stað þar sem aðlaganir nýrra barna standa yfir. Viljum við bjóða nýja foreldra og börn velkomin til okkar á Skerjagarð .

Það eru ekki miklar mannabreytingar hjá okkur þennan veturinn    Hún Steinunn er að fara í skóla og er síðasti dagurinn hennar á föstudaginn og munum við sakna hennar mikið og óskum við henni velfarnaðar í skólanum. Við erum búnar að fá nýjan starfsmann til okkar en hún heitir Rósella og verður hún á Bóli. Einnig verður hún Elín (dóttir Ellu og Óla) á Bóli sem aukamanneskja. Annars er sami starfsmannahópurinn og var í fyrra en smá tilfærslur eru á milli deilda. Hún Guðfinna sem var á Bakka er komin niður á Ból og er deildarstjóri þar. Helga sem var á Bóli er komin upp á Bakka og Ananda sem var á Bóli verður á Bakka og á Bóli.

Við höfum tekið upp nýja reglu í sambandi við hvað má koma með þegar börnin eiga afmæli. Við tókum þá ákvörðun að nú sé ekki í boði að koma með kökur á afmælisegi barnanna. Það verður í boði að koma með ís, snakk eða grænmeti. Við vonum allir verði ánægðir með þessa breytingu
 

Í síðustu viku var nestisdagur hjá okkur og komu þá börnin með nesti að heiman og fórum við út á skógarróló og borðuðum nestið okkar. Það er alltaf mikil stemning fyrir nestisdegi og þá sérstaklega þegar hægt er að borða það úti.
    

Annars hefur veðrið leikið við okkur og höfum við notfært okkur það og verið mikið úti að leika.
Börnin á Bakka eru byrjuð að skoða bækur um sjóræningja en við ætlum að vera með sjóræningjaþema næstu daga eða vikur (fer eftir áhuga barnanna). Það er mikð búið að vera að skoða í sjóræningja og er mikill áhugi hjá börnunum.

Á Bóli eru aðlaganir í fullu gangi og ganga mjög vel  
Þetta verður flottur barnahópur á Skerjagarði þennan veturinn eins og alltaf

Það eru nýjar myndir í myndaalbúminu frá ágúst. Endilega kíkið á það.

Bestu kveðjur frá Bakka og Bóli
Flettingar í dag: 83
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364960
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar