Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

16.09.2008 10:31

Fullt af nýjum myndum í albúminu :-)

Hæhæ

Bakki:
Á Bakka er sjóræningjaþema í fullum gangi en fer að taka enda. Við ætlum að enda það á fimmtudaginn með sjóræningjadegi. Þá fá börnin allt það sem þau hafa búið til í tengslum við sjóræningjaþemað, breytast í sjóræningja og leyta að fjársjóði sem þau hafa falið úti. Meistararnir (skólahópur) ætlar svo hafa leyniveislu fyrir alla sjóræningja :-) 
Ykkur foreldrum er síðan boðið að koma á fimmtudaginn og skoða afrakstur þemavinnunar á milli klukkan 15-17.
 
Á föstudaginn er svo spiladagur en þá mega börn sem fædd eru 2003 kom með spil að heiman. Við ætlum að prófa að hafa svona spiladaga á föstudögum og skipta á milli barnanna að koma með spil.

Tónlistin með henni Berglindi tónlistarkennara byrjar á föstudaginn. Ég ætla að setja inn hópana hér á heimasíðuna undir -tónlist-. og klukkan hvað börnin eru þannig að það séu allir mættir á réttum tíma til að missa ekki af tónlistinni.

Það eru komin nöfn á yngri hópana á Bakka og eru það:
Hjartahópur (Lára Ósk, Freyja Dís, Tinna María, Ísold, Ásta Matthea og Anna Fríða.)
Hákarlahópur (Stefán Þorri, Skírnir, Jóhannes, Funi og Mummi).
  
    Hjartahópur                         Hákarlarnir

Meistararnir:
Meistararnir eru að æfa stafinn Aa í skólahóp.
Þeir eru einnig að æfa þulu sem þeir svo myndskreyttu.

Fögur er kvöldsólin, heið og hrein,
lata kisa liggur á stein:
,,Ég drap eina mús,
lapti rjóma úr krús,
steiktri stirtlu og sporði
stal ég undir borði.
Ég er svo sæl og sveitt,
södd og löt og þreytt,
sagði kisa.


Ból:
Á Bóli er allt komið á fullt skrið. Hópastarfið er komið í gang og eru börin að læra að vera saman í hóp og taka tillit til hvers annars. Í hópastarfi er mikið spilað, leikið með leir, litað og málað. Yngstu börnin eru byrjuð í könnunarleiknum og er gaman að fylgjast með þeim, þar sem þau eru að uppgötva allan efniviðin sem við bjóðum upp á þar.
 
     Hópastarf               Könnunarleikur

Tónlistin með Berglindi tónlistarkennara byrjar svo á fimmtudaginn á Bóli kl. 9:00. 

Að lokum viljum við svo minna á foreldrafundinn sem verður haldinn hér á Skerjagarði þriðjudaginn 30. september kl. 20:30. Viljum við biðja ykkur um að taka þetta kvöld frá emoticon
Á þessum fundi verður kynnig á starfinu hér á Skerjó og starfsfólki.

ps. Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu.  Það eru nýjar myndir á 4 fyrstu blaðsíðunum endilega kíkið og fáið börnin ykkar til að skoða með ykkur og segja ykkur frá því sem þau eru að gera í leikskólanum emoticon
kv Bakki og Ból
Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364952
Samtals gestir: 82634
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:30:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar