Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

23.09.2008 10:27

Ótitlað

Hæhæ

Viljum við byrja á að minna á FORLDRAFUNDINN sem verður haldinn á þriðjudaginn 30. september kl. 20:30 hér á Skerjagarði.
Vonumst við til að sjá sem flesta.

Við viljum biðja ykkur foreldra um að hafa með allan þann útifatnað sem barnið þarf að hafa í leikskólanum s.s. pollagalla, stígvél, húfu, vettlinga (minnst 2 pör), hlýja peysu, úlpu og góða skó (ef ekki rignir). Það er einnig farið að kólna og má þá hafa í huga að koma með kuldagalla þegar það rignir ekki.
  Þau eru mörg hver ekki með þetta meðferðis og það er ómögulegt að vera að senda þau t.d. út í strigaskóm þegar það rignir eða húfulaus.

Ef við höldum áfram á þessum nótum hehe emoticon þá viljum við líka biðja ykkur um að hafa alltaf nóg af aukafötum í körfunum. Það er oft mikil rigning úti og stórir pollar sem gaman er að sulla í og blotna börnin því mikið. Þá er nauðsynlegt að hafa aukaföt í körfunum. Þið verðið að vera dugleg að fylgjast með því að nóg sé af öllu s.s. sokkar (2 pör) eða sokkabuxur, buxur, peysur, nærbuxur og bolur.
Við eigum ekki föt til að lána börnunum og eru þau mörg hver ekki tilbúin að fara á lánsföt.

Tónlistin með henni Berglindi byrjaði aftur í síðustu viku og voru börnin mjög spennt og glöð að hitta hana aftur og læra ný lög og leiki.

Bakki:

Á Bakka erum við búin að klára sjóræningjaþemað. Við enduðum það á sjóræningjadegi þar sem börnin breyttust í sjóræningja. Þau voru búin að búa til allskyns sjóræningjahluti sem þau notuðu svo þennan dag. Þau fóru einnig í fjársjóðsleit og fundu allir hóparnir fjársjóðskistur með fjársjóði í emoticon     
Meistararnir bökuðu sjóræningjaköku handa Bakka og Bóli og smakkaðist hún mjög vel namm namm
Í lok dagsins var síðan foreldrum boðið að koma að skoða afraksturinn af þemavinnunni.  Það var rosalega góð mæting og viljum við þakka ykkur kærlega fyrir komuna.

Ból:
Á Bóli gengur allt sinn vanagang. Börnin fara út að leika, í könnunarleikinn og í hópastarf.
  Þau eru líka dugleg að hjálpa hvert öðru :-) 

Á fimmtudaginn er svo bangsadagur og mega þá börnin koma með bangsa í leikskólann. 

Það var gaman að sjá að það voru nokkrir sem skrifuðu í gestabókina emoticon
Endilega verið dugleg að kvitta þar.
 
Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið!!!!!!!!!!!!!

kv Bakki og Ból



Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364952
Samtals gestir: 82634
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:30:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar