Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

02.12.2008 10:37

Ótitlað

Hæhæ allir

Jæja þá erum við komin í jólaskap hér á Skerjó. Við erum byrjuð að syngja jólalögin og gera allskonar jólaskraut.  Við höfðum aðventustund á föstudaginn þar sem við kveiktum á fyrsta aðventukertinu þ.e. spádómskertinu og sungum saman ,,Við kveikjum einu kerti á....,,  
    

Við kveikjum einu kerti á...
(S. Muri/Lilja Kristjánsdóttir)

Við kveikjum einu kerti á,
Hans koma nálgast fer,
sem fyrstu jól í jötu lá
og jesúbarnið er.

Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans.
Því Drottin sjálfur soninn þá
mun senda´ í líking manns.

Við kveikjum þremur kertum á
því konungs beðið er,
þótt Jesús sjálfur jötu og strá
á jólum kysi sér.

Við kveikjum fjórum kertum á;
brátt kemur gesturinn
og allar þjóðir þurfa að sjá
að það er frelsarinn.


Á föstudaginn 5. desember verður jólaballið og verður það haldið í Frostaskjóli kl. 14:00.
Þið þurfið að vera búin að sækja börnin í leikskólann ekki seinna en kl. 13:00.
Foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna.

Það er kominn matseðill fyrir desember inn á síðuna og einnig stundaskráin fyrir desember. Við settum einnig stundaskránna í hólfin hjá börnunum þannig að allir ættu að hafa fengið eintak og geta því fylgst með þegar eitthvað er um að vera hjá okkur.

Nú er búið að breyta morgunmatnum hjá okkur og var þetta fyrsti dagurinn í dag þar sem við vorum einungis með hafragraut í boði og fannst okkur sem flestir væru bara ánægðir með þessa breytingu emoticon Það gæti tekið einhver börn nokkra daga að aðlagast þessu en við erum þess viss um að það tekur ekki langan tíma og það verða flestir farnir að borða hafragraut af bestu lyst áður en langt um líður emoticon

Stelpudagurinn var hjá okkur í síðustu viku og komu stelpurnar þá fínar í leikskólann. Á Bakka bjuggu strákarnir til hálsmen handa stelpunum og stelpurnar fóru í Gleðigarð og bjuggu til kórónu handa sér. Síðan var slegið upp balli þar sem strákarnir buðu stelpunum upp í dansemoticon 
Á Bóli bjuggu stelpurnar sér til kórónu og voru inni að leika emoticon
   

Það eru líka komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.

Kv Bakki og Ból




Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364950
Samtals gestir: 82633
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:53:35

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar