|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
13.01.2009 09:41Nýtt þema og fleiraHæhæ Hún Ananda er hætt hjá okkur Nú erum við að fara af stað með nýtt þema á báðum deildum. -Eldri hóparnir á Bakka ætla að taka fyrir umferðina. Við ætlum að fara vítt og breytt í að fjalla um umferðina og sjá hvað börnin vilja skoða nánar. -Á fimmtudaginn 15. janúar förum við í vettvangsferð í VÍS en þar verður tekið á móti okkur og fjallað um ýmislegt sem tengist umferð og umferðaröryggi. -Við erum að læra nýtt lag sem tengist umferðinni og er það svona: Rauði karlinn (lag. Gamli nói)
Rauði karlinn, rauði karlinn Græna karlinn, græna karlinn -Yngri hóparnir á Bakka og elstu börnin á Bóli ætla að taka fyrir,,Ég sjálf(ur) og nánasta umhverfið mitt,,. -Yngri börnin á Bóli taka fyrir grunnlitina (gulur, rauður og blár)og vinna með þá. Í lok hvers litar verður haldið litaball -Meistararnir fara í heimsókn í Melaskóla mánudaginn 26. janúar kl. 13:30. Heimsóknin hefst á skólasafninu þar sem börnin fá fræðslu um skólann og hlusta á sögu. Í lokin er svo Selið skoðað. Tónlistin með Berglindi tónlistarkennara byrjar svo aftur hjá okkur í þessari viku, Ból á fimmtudaginn og Bakki á föstudaginn. Á stundaskránni stóð að hún ætti að byrja í síðustu viku en það breyttist. Við viljum síðan minna á vasaljósadaginn sem verður næstkomandi fimmtudag. Þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum að fara snemma út þennan dag og leika okkur með vasaljósið í myrkrinu. Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. Kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 65 Gestir í dag: 29 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364942 Samtals gestir: 82632 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:46:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |