|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
26.01.2009 11:14ÓtitlaðHæhæ Við viljum minna á strákadaginn sem verður næsta fimmtudag 29.júní. Þá væri gaman ef strákarnir mættu fínir í leikskólann og stelpurnar gera eitthvað skemmtilegt fyrir strákana. Annars er þemað í fullum gangi. Eldri börnin á Bakka hafa verið að skoða umferðarmerkin, teikna umferðamynd og farið í göngu um hverfið og skoðað umferðamerkin í hverfinu okkar. Yngri börnin á Bakka og eldri á Bóli sem eru að skoða ,,ég sjálfur,, eru byrjuð að skoða augun sín og hafa verið teknar ljósmyndir af þeim og þau geta skoðað sig...hvernig lít ég út? Yngstu börnin á Bóli hafa verið að vinna með rauða litinn. Rautt ball verður svo haldið á Bóli 6. febrúar. Næstkomandi fimmtudag 29.jan fara eldri börnin á Bakka í sögustund á Borgarbókasafnið. Þá ætlar bókasafnsfræðingur þar að lesa fyrir okkur sögu (hún ætlar að reyna að finna einhverja umferðasögu). Við viljum svo minna ykkur á að fara yfir hólf barnanna á hverjum degi og sjá til þess að það séu alltaf þurrir vettlingar (2 pör). Það eru mjög mörg börn sem vantar vettlinga í útiverunni. Einnig að passa upp á að það séu alltaf húfur og viðeigandi skór og auðvitað kuldagalli, regngalli og hlý peysa) Það eru komnar fullt af nýjum myndum í myndaalbúmið kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 73 Gestir í dag: 30 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364950 Samtals gestir: 82633 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:53:35 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |