|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
16.02.2009 10:14ÓtitlaðHæhæ Þá er enn og aftur komin ný vika og nóg að gera hjá okkur á Skerjagarði. Í síðustu viku var nestisdagur hjá okkur og komu flestir með nesti með sér. Við settumst niður inni á deild og borðuðum nestið okkar, kíktum á hvað hinir voru með og skiptumst á nesti :-) ![]() Þemastarf: Umferðin-Börnin kláruðu umferðamerkin sín og voru mjög ánægð með þau. Við bjuggum einnig til umferðaljós með því að stimpla hendurnar okkar á blað ,rautt, gult og grænt. ![]() Ég sjálfur- Börnin teiknuðu inn á líkamann sinn augu og tóku mynd af nefinu sínu og límdu á ![]() Litirnir- Nú eru börnin farin að skoða bláa litinn. Þau skoða ýmislegt sem er blátt og föndra með bláa litinn. Á fimmtudaginn næsta verður dótadagur hjá okkur. Þá mega börnin koma með eitt dót í leikskólann. Það væri mjög gott ef þið merktuð dótið sem börnin koma með. Við viljum einnig minna á að það er ekki í boði að koma með kökur þegar börnin eiga afmæli. Það er í boði að koma með ís, snakk og grænmeti. Þegar líður að afmæli barnanna þá setjum við miða í hólfin þar sem við minnum á hvað er í boði að koma með og viljum við biðja ykkur um að virða það Það eru nýjar myndir í albúminu kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 73 Gestir í dag: 30 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364950 Samtals gestir: 82633 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:53:35 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |