Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

02.03.2009 10:35

Ótitlað

Hæhæ

Það var mikið um að vera í síðustu viku en þá var bollu-, sprengi-, og öskudagur. Á bolludeginum fengum við auðvitað bollu í kaffitímanum og fannst börnunum þær rosalega góðar. Á spengidegi borðuðu allir yfir sig af saltkjöti og baunum. Síðan var það hinn lagþráði öskudagur sem allir voru búnir að bíða eftir með spenningi emoticon . Börnin mættu í allkyns furðufötum. Öll börnin hittust niður á Bóli og var ,,snakkið slegið úr pokanum emoticon . Þegar börnin voru búin að borða snakkið var dansað og farið í dansleiki. Eftir hádegi var svo farið út að leika.
     Bolludagur

    
Öskudagur

Þemastarf:

Umferðin- Þar sem öskudagur kom upp á miðvikudegi þá féll þemastarfið niður. Börnin hafa mikið verið að spila umferðaspilið í vikunni sem þau bjuggu til og einnig höfum við verið að spjalla mikið um umferðina og sungið umferðalög.
   
Ég sjálfur- börnin hafa verið að skoða nefið og lyktarskynið. Börnin á Bóli voru að búa til líkamann sinn og skoða andlitið sitt í spegli, sem þau svo vinna áfram með. 
     

Litirnir- Börnin hafa verið að vinna með bláa litinn. Blár dagur verður svo á Bóli næsta föstudag 6. mars en þá mæta allir í einhverju bláu.

 

Á fimmtudaginn næstkomandi þ.e. 5. mars þá fara tveir elstu árgangarnir í heimsókn á bókasafnið. Bókasafnið bauð okkur að koma í heimsókn og fá fræðslu um meðferð bóka og fleira.

Á föstudaginn 6. mars fer svo skólahópurinn í leikfimi út í Melaskóla.

Foreldrakaffi verður svo á Bakka 12. mars. kl. 14-16.  Þá langar okkur til að sýna foreldrum afrakstur þemavinnunnar sem stendur yfir núna.

Einnig er komin stundatafla fyrir mars mánuð inn á heimasíðuna. 
Í mars ætlum við að hafa kósídag ( 19. mars) en þá geta börnin mætt í náttfötum, með bangsa sinn, kodda eða teppi eða hvað sem ykkur dettur í hug sem er kósí emoticon  
Á Bakka verður svo spila- og púsldagur en á Bóli verður bóka- og geisladiskadagur (26. mars).

Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið.


kv Bakki og Ból


Flettingar í dag: 83
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364960
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar