Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

09.03.2009 11:05

Ótitlað

Hæhæ

Það er allt gott að frétta af okkur á Skerjó. 

Þemastarf:

Umferðin- Hóparnir ákváðu að gera umferðagötur með umferðamerkjum á. Rassálfarnir máluðu umferðagötur á stórt blað og Leðurblökurnar bjuggu til lítil umferðamerki til að setja á umferðagöturnar.
Ath! Það er mjög skemmtileg umferðasíða með allskyns umferðaleikjum fyrir krakka inn á slóðinni
www.us.is  (Umferðastofa). Þar er t.d. leikur sem heitir ,,Innípúkinn í umferðinni,, sem er mjög skemmtilegur leikur  þar sem börnin hjálpa Innipúkanum að finna Matthildi og Dodda og þarf hann að fara yfir götur og lærir umferðareglurnar í leiðinni. Einnig eru þar samstæðuleikir með umferðamerkjunum og fleira.
 
Ég sjálfur- Börnin notuðu skynfæri til að finna lykt og bragð. Settur var allskyns matur í skál og álpappír yfir. Þau fengu svo að lykta af skálinni og áttu að giska á hvað var í skálinni. Þau voru mjög klár að finna út hvað var í skálinni. Síðan fengu þau að smakka á því sem var í skálinni.
Þau máluðu einnig kallana sína. Þeir eru orðnir svo flottir emoticon
 
Litirnir- Börnin eru búin að vinna með bláa litinn og var blátt ball á síðasta föstudag.
Næsti litur sem börnin vinna með er gulur (páskaliturinn)

Á fimmtudaginn 12. mars verður foreldrakaffi á Bakka kl. 14-16. Þá ætla börnin að sýna afrakstur þemavinnunnar þ.e. ,,umferðin,,og ,,ég sjálfur,,.

ATH!
Við viljum benda ykkur á að föstudaginn 24. APRÍL verður leikskólinn lokaður vegna námskeiðsdags starfsmanna. (Ath! það er einnig lokað fimmtudaginn 23. apríl en þá er sumardagurinn fyrsti).

Það eru komnar myndir í myndaalbúmið. Einnig nýr matseðill.
Ég var einnig að senda til ykkar stundatöfluna fyrir mars mánuð, þannig að þið getið fylgst með því sem er á döfinni hjá okkur.

Einnig viljum við benda ykkur á að skoða heimasíðuna með börnunum ykkar og fá þau til að segja ykkur frá því sem er að gerast hjá okkur. Þeim finnst það mjög gaman. Við fórum með nokkur börn í tölvuna hjá okkur og skoðuðum myndir af heimasíðunni og þeim fannst það mjög spennandi emoticon

kv. Bakki og Ból

Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364952
Samtals gestir: 82634
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:30:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar