|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
16.03.2009 10:13ÓtitlaðHæhæ Þá enn ein vikan búin og nóg að gera hjá okkur á Bakka og Bóli. Á fimmtudaginn var foreldrakaffi á Bakka þar sem börnin sýndu foreldrum afrakstur þemavinnunnar þ.e. ,,umferðin,, og ,,ég sjálfur,,. Frábær mæting var og viljum við þakka ykkur fyrir komuna. Þemavinna Umferðin: Hópaverkefni- Börnin máluðu umferðagöturnar, bjuggu til umferðamerki, bíla (löggubíla, slökkviliðsbíla og venjulega bíla) og hús (slökkvistöð, löggustöð, hús sem var að kvikna í), sem voru síðan sett á göturnar. Ég sjálfur: Börnin máluðu kallana sína, skoðuðu eyrun. Nokkur börn bjuggu til umferðamerki og umferðaljós :-) Börnin á Bóli skoðuðu nefið og notuðu skynfærin til að finna lykt og bragð. Ég sjálfurLitirnir: Börnin eru byrjuð að skoða gula litinn. Vil viljum minna á Kósídag sem verður næsta fimmtudag (19.mars). En þá mega börnin koma í náttfötum, með kodda, teppi, bangsa eða eitthvað sem þeim finnst kósí að vera með. Skólahópurinn er byrjaður að æfa Þúsaldaljóð, þ.e. um jörðina, vatnið, loftið og eldinn. Þeir vinna einnig ýmis verkefni tengd þessu. Textana við þessi lög er að finna hér inn á heimasíðunni undir-söngtextar-Þúsaldarljóð eftir Sveinbjörn I. Baldvinsson. ATH! Við viljum enn og aftur biðja ykkur um að fara yfir hólf barnanna ykkar í lok hvers dags og sjá til þess að þar sé allur sá útifatnaður sem börnin þurfa á að halda til að geta verið úti að leika (kuldagalli, húfur, kuldaskór,stígvél, pollagalli, hlý peysa og að minnsta kosti tvö pör af vettlingum). Það eru allt of mörg börn sem eru ekki með vettlinga og þá er mjög kalt að vera úti að leika í frostinu bbrrrrrrrr...... Nýjar myndir í myndaalbúminu kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 83 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364960 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |