|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
10.08.2009 13:52ÓtitlaðHæhæ Vonandi hafa allir haft það gott í sumarfríinu í þessu frábæra veðri sem við fengum Nú er allt komið á fullt skrið hjá okkur. Aðlaganir nýrra barna á Bóli ganga mjög vel og viljum við bjóða ný börn og foreldra þeirra velkomin í hópinn. Nestisdagurinn sem var á þriðjudaginn gekk mjög vel. Við fórum út fyrir leikskólalóðina og drukkum nesti en fengum ekki alveg að njóta okkar þar sem geitungar voru á sveimi allt í kringum okkur og gerði okkur lífið leitt ![]() Skólahópurinn okkar er búinn að fara í skólahóp og fundu þau nafn á hópinn og heita þau SNILLINGARNIR Annað starf byrjar hægt og rólega hjá okkur, en elstu börnin fengu mikinn áhuga á öllum skordýrunum í kringum okkur og eru farin að skoða þau nánar. Þau eru til að mynda búin að búa til skordýragildru og fleira skemmtilegt. Yngri hóparnir ætla að byrja á vináttunni en hún skiptir miklu máli hjá þeim. Þau allra yngstu ætla að byrja að aðlagast leikskólanum og er það heilmikið nám hjá þeim Það eru komnar nýjar myndir á heimasíðuna og einnig matseðill fyrir ágúst mánuð. Bestu kveðjur Bakki og Ból Flettingar í dag: 83 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364960 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |