|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
02.09.2009 12:59ÓtitlaðHæhæ Ath! Leikskólinn verður lokaður á föstudaginn 4. september. Það varð smá villa í stundaskránni hjá Bóli en þar kom ekki fram að leikskólinn sé lokaður, en það eru báðar deildar lokaðar!!!!! Ból Hópastarfið er komið á fullt skrið hjá eldri börnunum á Bóli. Þau fundu nafn á hópinn og heitir hann Fiskahópur. Yngri börnin hafa verið að vinna í myndsköpun og farið í könnunarleikinn. Þau fóru einnig gönguferð um hverfið og var það voða gaman. Hreyfingin er komin á fullt og fara eldri börnin á Bóli á fimmtudögum í hreyfingu. Bakki Elstu börnin á Bakka eru enn að skoða skordýrin. Við fengum í síðustu viku rosalega fallegt og stórt fiðrildi sem eitt foreldri kom með handa okkur. Haft var samband við Náttúrugripasafnið og vildu þau endilega fá fiðrildið þangað og fóru börnin í heimsókn á safnið. Yngri börnin hafa verið að klára að skreyta vinakeðjuna (stimpla hendur og skreyta) og er keðjan byrjuð að myndast í stiganum á leið upp á Bakka. Við fórum einnig í fjöruferð að finna vinasteina sem við ætlum að mála og skreyta. Það eru fullt af nýjum myndum í myndaalbúminu kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 84 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364961 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |