Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

09.09.2009 12:36

Hæhæ

Nú er byrjað að kólna aðeins í veðri og er því nauðsynlegt að börnin séu vel búin í leikskólanum. Nauðsynlegt er að hafa húfur, vettlinga, hlýja úlpu og góða peysu til að vera í undir pollagallanum í hólfunum sem og góða skó auk stígvéla. Við viljum einnig biðja ykkur um að setja fötin (útföt sem og aukaföt) í hólfin þeirra þannig að þau geti náð í þau sjálf og klætt sig í. Börnin eru mjög dugleg að klæða sig sjálf og leiðinlegt þegar eitthvað vantar :-)

Ból

Á Bóli hefur Fiskahópur verið að vinna með vináttuna. Þau hafa verið að stimpla hendur á diska til að setja í vinakeðjuna okkar. Þau hafa einnig málað vinamynd tvö og tvö saman og spjallað heilmikið um vináttuna.

Yngri börnin hafa verið að fara í hópastarf og könnunarleikinn. Einnig hafa þau verið að fara í stuttar gönguferðir um hverfið.
 
Bakki

Elstu börnin á Bakka eru enn að vinna með skordýraþemað. Einnig hafa þau verið að æfa sig að sauma og hefur það gengið mjög vel.
 
Yngri hóparnir hafa verið að mála vinasteinana sem við týndum í fjörunni í síðustu viku. Mikil umræða hefur verið um vináttuna og sungin vinalög.
 
Vinastund:

Í síðustu viku var fyrsta Vinastundin. Börnin á Bóli komu í heimsókn upp á Bakka og sungu við nokkur lög saman. Yngri börnin á Bakka sungu í lokin eitt lag fyrir hin börnin. Þetta var rosalega skemmtileg stund og fannst börnunum á Bóli mjög spennandi að koma í heimsókn á Bakka. Næsta vinastund verður svo fyrsta föstudag í október og þá munu börnin á Bakka fara niður á Ból og heimsækja börnin þar.
 

Fullt af nýjum myndum í albúminu.

ps. Við viljum líka minna á Gestabókina. Okkur finnst voða gaman að heyra frá ykkur :-)

kv Bakki og Ból


-Hér koma upplýsingar í sambandi við ljósmyndarann sem kemur í leikskólann og tekur myndir af börnunum.

Kæru foreldrar
Foreldrafélag Skerjagarðs stendur fyrir því að fá hann Gunnar Leif Jóhannsson ljósmyndara til að koma og taka myndir af börnunum n.k. miðvikudag 23. september.
 
Gunnar mun bæði taka hópmyndir af hvorri deild og einstaklingsmyndir.  Reiknað er með að hópmyndataka verði fljótlega upp úr 9 og því nauðsynlegt að börnin mæti ekki seinna en 9 á föstudagsmorguninn.
 
Eftirfarandi tilboð býðst foreldrum sem hafa áhuga á að kaupa myndir:
 
Verð: 3.500 ISK per barn.  (Það er ekki veittur systkynaafsláttur þar sem þetta er allra lægsta verð)
 
Innifalið:  Hópmynd í stærðinni 20x25 með nöfnum inná ásamt einstaklingsmynd í nokkrum stærðum, 1 stk 13X18, 1. stk 9X12 og fjórar passamyndir, tilvalið í sumarfríið og til að hafa í veskinu.
 
Gunnar er eigandi að Barna og fjölskylduljósmyndum.  Nánari upplýsingar um stofu hans og starfsemi hennar er hægt að finna á ljosmyndir.net.
 
Vonum að þið séu öll jafn ánægð með þetta framtak eins og við :)
 
Með góðri kveðju,
Stjórn foreldrafélagsins.

Flettingar í dag: 84
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364961
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar