Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

16.09.2009 11:47

Ótitlað

Hæhæ

Nú er mjög blautt í veðri og gaman að leika úti í pollunum. Börnin koma mjög blaut inn úr útiverunni og vantar allt of oft aukaföt í hólfin hjá þeim emoticon    Við eigum ekki aukaföt til að lána og verðið þið foreldrar að fylgjast með  því hvort það vanti aukaföt hjá ykkar börnum, annars komum við til með að hringja í ykkur og biðja ykkur um að koma með föt á barnið ef þau vantar. Það þurfa að vera auka buxur, peysa, bolur, nærbuxur og sokkar (2 pör). Ef þið farið með blaut föt heim af barninu - þá þurfa að koma ný föt í hólfið daginn eftir emoticon

-Við viljum minna á ljósmyndarann sem kemur miðvikudaginn 23. september og tekur mynd af börnunum ykkar.

-Foreldrafundur verður haldinn á Skerjagarði miðvikudagskvöldið 30. september kl. 20:30. Þá munum við kynna starfið í vetur sem og starfsfólk.

Ból- Í hópastarfi hjá eldri börnunum (fiskahóp) er enn verið að vinna með vináttuna. Á morgunn fimmtudag verður vinaball emoticon
  

Yngri börnin á Bóli fara í könnunarleikinn, mála og leika sér úti og inni emoticon
Þau eru eru líka búin að vera að mála mynd og stimpla hendurnar fyrir vinakeðjuna okkar.
   

Bakki
- Öll börnin á Bakka hafa verið að vinna með vináttuna þessa vikuna. Þau hafa verið að mála vinasteina og klára vinakeðjuna og fleira skemmtilegt. Við endum vinaþemað með vinaballi sem verður á morgunn fimmtudag emoticon
  

Ath! Það eru komnar nýjar myndir á heimasíðuna !!!!

kv Bakki og Ból

Flettingar í dag: 84
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364961
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar