Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

23.09.2009 10:59

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum byrja á að minna á foreldrafundinn sem verður haldinn miðvikudaginn 30. september kl. 20:30 :) Starfsfólk kynnir sig og kynning verður á starfinu í vetur.  Veitingar í boði :)

Gunnar Leifur ljósmyndari kom í dag og tók myndir af börnunum. Gekk myndatakan mjög vel. Hann tók mynd af öllum börnunum og fá foreldrar síðan sýnishorn af myndunum (vonandi í næstu viku) og geta þá ákveðið hvort þeir vilja kaupa myndina eða ekki :)

Börnin á Bóli í myndatöku

Bakki:

Nú er vinaþemað á enda hjá okkur á Bakka og förum við fljótlega að finna okkur nýtt þema til að skoða :)
Við enduðum vinaþema með vinaballi og var mjög mikið fjör á ballinu.
  
Vinaball á Bakka :)

Ból:
Eldri börnin á Bóli eru enn að vinna með vinaþemað. Í gær fór fiskahópur í fjöruna að tína steina til að mála :)
Yngri börnin fóru í gönguferð út á skógarróló að leika og hafa síðan verið í könnunarleik og leik inni og úti.
Á Bóli var líka vinaball í síðustu viku og skemmtu allir sér mjög vel :)
  
Vinaball á Bóli            Í fjörunni           Úti á skógarróló

ATH! Nýjar myndir í myndaalbúminu :)

kv Bakki og Ból




Flettingar í dag: 73
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364950
Samtals gestir: 82633
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:53:35

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar