|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
07.10.2009 11:03ÓtitlaðHæhæ Við viljum byrja á að þakka ykkur fyrir góða mætingu á foreldrafundinn Á morgunn fimmtudag 8. október verður gleraugnadagur í leikskólanum. Þá mæta allir með gleraugu í leikskólann, það geta verið t.d. sólgleraugu, sundgleraugu eða hvernig gleraugu sem er Næsta föstudag verður vinastund á Bóli. Þá koma krakkarnir af Bóli og Bakka saman og syngja nokkur lög saman. Einnig munu eldri börnin á Bóli syngja eitt lag fyrir hin börnin sem þau eru búin að æfa Ból: Fiskahópur á Bóli er enn að vinna með vinaþemað. Þau eru búin að mála og skreyta vinasteinana sína. Þau hafa einnig verið mjög dugleg að fara í gönguferðir um hverfið. Yngri börni hafa einnig farið mikið í gönguferðir. Deltasandurinn er líka vinsæll hjá litlu krílunum okkar á Bóli. Leikið með Deltasand Bakki: Elstu börnin á Bakka (Snillingarnir) hafa ákveðið taka fyrir eitthvað ævintýri, æfa það og leika og útbúa allt sem því tilheyrir þ.e. búninga, leikmuni og þess háttar. Þessi hugmynd kom í kjölfarið af heimsókninni í Þjóðleikhúsið sem þau fóru í um daginn. Þau voru mjög áhugasöm og spennt eftir að hafa farið í heimsóknina og var ákveðið að fara út í leikræna tjáningu. Þau fóru á bókasafnið í síðustu viku og tóku fullt af bókum með ævintýrum sem þau eru að lesa og ákveða síðan hvaða ævintýri þau ætla að vinna með. Við höfum einnig verið að fylgjast með yngri börnunum á Bakka og athuga hvort það sé eitthvað sem þau eru að sýna áhuga á. Við höfum ekki enn ákveðið hvað næsta viðfangsefni verður en ætlum núna að fara að vinna aðeins með fjölskylduna okkar Á bókasafninu í Gerðubergi Hann Sigurvin frá kirkjunni kom í heimsókn til okkar síðasta föstudag. Hann spjallaði aðeins við okkur, við sungum saman og svo kom hann með allskonar ,,dýr,, (t.d. hund, Rebba ref og fleiri) sem við fengum að heilsa upp á ![]() Sigurvin í heimsókn á Bakka og Bóli Það eru nýjar myndir í albúminu ps. Það væri rosa gaman að heyra frá ykkur í gestabókinni kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 83 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364960 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |