Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

28.10.2009 11:44

Ótitlað

Hæhæ

Næstkomandi föstudag 30.október kemur íþróttaálfurinn í heimsókn til okkar á Skerjagarð. Hann kemur kl. 9:30 og þurfa því börnin að vera mætt fyrir þann tíma til að missa ekki af honum emoticon 
Börnin mega mæta í íþróttaálfabúning eða í íþróttafötum þennan dag og sjáum við til þess að þetta verði góður íþróttadagur. 





Eldhúsið
Hún Mumbi okkar er komin í fæðingarorlof og hefur hann Óli tekið við að elda handa okkur næstu 2-3 mánuðina.

Ból
Fiskahópur hefur verið að æfa sig í fínhreyfingum og verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið.
Yngri börnin hafa verið dugleg í myndsköpun, í könnunarleik og svo eru þau líka mjög dugleg að leika úti.
 
Könnunarleikur

Bakki
Í síðustu viku fóru elstu börnin í heimsókn á Árbæjarsafn að skoða sýningu sem heitir ,,Komdu að leika,,. Þar fengu börnin að sjá dót sem var vinsælt í ,,gamla daga,, og fengu þau að leika með það. Þar voru líka allskyns búningar sem þau mátuðu og gerðu leikrit.
 
Á Árbæjarsafninu sýning ,,Komdu að leika,,

Elstu börnin eru að vinna með ævintýrin og eru þau búin að velja sér ævintýri sem þau ætla að setja upp. Þau hafa ákveðið að vinna með ævintýrið um Gullbrá og birnina þrjá og Grísirnir þrír.
 
,,Gullbrá og birnirnir þrír,,

Yngri börnin á Bakka hafa verið að æfa sig í fínhreyfingum. Þau eru einnig að vinna með fjölskylduna sína. Þau hafa líka verið mjög dugleg að fara í gönguferðir um hverfið.

Í síðustu viku var furðufataball og var gaman að sjá hvað börnin voru í skemmtilegum búningum og skemmtu sér vel. Slegið var upp furðufataballi á Bakka og farið var í ýmsa leiki. 
 
Furðufatadagur

Alþjóðlegi bangsadagurinn var í gær þriðjudag og máttu börnin koma með bangsa með sér í leikskólann. Mörg börn mættu með bangsa með sér.
 
Alþjóðlegi bangsadagurinn

ATH! Við vorum að breyta atriðum í skóladagatalinu fyrir veturinn 2009-2010 sem er hér inni á heimasíðunni.
    • Foreldraviðtölin verða á Bakka fimmtudaginn 5 nóvember og föstudaginn 6. nóvember og á Bóli þriðjudaginn 10. og miðvikudaginn 11. nóvember.
    • Jólaballið var skráð 11. desember en það verður 4. desember í Frostaskjóli.
    • Einnig færðum við kaffihúsadagana aftur um eina viku þar sem jólaballið færðist fram um eina viku.

  • Stundatafla fyrir nóvember er komin inn á heimasíðuna.
  • Einnig eru nýjar myndir í  myndaalbúminu
      KV Bakki og Ból


Flettingar í dag: 84
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364961
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar