Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

11.11.2009 11:36

Ótitlað

Hæhæ

Íþróttaálfurinn kom í heimsókn til okkar og gerði með okkur nokkrar æfingar og spjallaði við krakkana. Skemmtu börnin sér vel og fannst mjög gaman að hitta íþróttaálfinn.
 

Ból

Á Bóli eru börnin að byrja að föndra jólaföndur :) Annars höfum við verið dugleg að vera úti að leika og farið í gönguferðir. Hreyfingin er alltaf á sínum stað og finnst börnunum mjög gaman í hreyfingunni.  Eldri börnin fara alltaf í val tvisvar sinnum í viku og einnig er mikið spilað.
    
Eldri börnin á Bóli í vali   Spilað á Bóli

Bakki


Yngri börnin á Bakka- eru búin að klára fjölskyldumyndirnar og eru þær mjög flottar og skemmtilegar eins þið eruð mörg búin að fá að sjá :)
Annars erum við núna byrjuð að föndra fyrir jólin og búa til endurunninn pappír. Við höfum líka verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið og eru börnin mjög dugleg að ganga.

          
Yngri börn í gönguferð          Börnin rífa niður dagblöð
                                   í endurunninn pappír

Eldri börnin á Bakka
- Hafa farið mikið út fyrir leikskólann og skoðað. Þau fóru á listasýningu Yosimtoma Nara og skoðuð skemmtileg verk þar (sjá myndaalbúm)
 
Á listasýningunni Yosimtoma Nara

Þau fóru einnig að skoða Hallgrímskirkju og voru þau mjög áhugasöm um kirkjuna. Þegar þau komu heim þá fóru nokkrir krakkar í einingakubbana og byggðu kirkjuna úr þeim :)
 
Hallgrímskirkja

Skólahópurinn fékk einnig heimsókn frá slökkviliðinu sem fræddu börnin  um reykskynjara og fleira. Þau fengu að horfa á fræðslumynd um eldsvoða, og síðan fengu þau að fara út og skoða sjúkrabílinn og heyra sírenuvælið
 
Slökkviliðið í  heimsókn

Matseðillinn er kominn inn á síðuna og nýjar myndir í albúmið :)

kv Bakki og Ból

Flettingar í dag: 83
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364960
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar