|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
25.11.2009 11:41ÓtitlaðHæhæ Nú er farið að kólna í veðri og viljum við biðja ykkur að fara vel yfir hólfin hjá börnunum og athuga hvort það vanti einhvern útifatnað. Það þurfa að vera tvö pör af hlýjum vettlingum (helst prjónavettlingar sérstaklega fyrir yngstu börnin þar sem þau eiga í erfiðleikum með að leika með þykkar lúffur), húfur, hlý peysa, kuldaskór og kuldagalli. Einnig er nauðsynlegt að hafa pollagallann og stígvél. Jæja þá er jólaundirbúningur í fullum gangi hér á Skerjó. Við erum farin að æfa okkur að syngja jólalögin fyrir jólaballið sem verður föstudaginn 4. desember kl. 14:00 í Frostaskjóli. Foreldar koma og sækja börnin ekki seinna en klukkan 13:00. Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin og foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna fólkið . Leikskólinn sér svo um drykki handa öllum. ![]() ![]() ![]() Föstudaginn 11. des verður svo Jólavinastund á Bóli og jólahúfudagur og mega börnin þá koma með jólasveinahúfu í leikskólann. Elstu tveir árgangarnir fara í kaffihúsaferð í Grasagarðinn mánudaginn 7. desember. Yngri börnin (2005) fara f.h. og eldri börnin (2004) fara e.h. Við munum einnig fara í húsdýragarðinn og leika okkur þar. Börn sem fædd eru 2006-2008 fara á kaffihús í Skerjagarði miðvikudaginn 9. desember. Við munum breyta eldhúsinu okkar í kaffihús og fá heitt kakó og nýbakaðar muffins sem við ætlum að baka mánudaginn 7. des og þriðjudaginn 8 des. Þriðjudaginn 15. desember fara börn sem fædd eru 2004-2006 í kirkjuna. Það kemur rúta að sækja okkur og tekur hann Sigurvin á móti okkur þar. Fimmtudaginn 17. desember er elstu börnunum boðið að koma aftur í kirkjuna og horfa á börn í 4. bekk Melaskóla sýna helgileik. Þriðjudaginn 22. desember verður svo foreldrakaffi klukkan 14:30 og er það síðasti dagur fyrir jólafrí. ![]() Leikskólinn verður svo lokaður á þorláksmessu og á milli jóla og nýárs. Við opnum aftur mánudaginn 4. janúar. ATH!!! Á morgunn fimmtudag verður svo náttfataball og mega börnin þá koma í náttfötum og með bangsa með sér. kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 84 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364961 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |