Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

02.12.2009 10:19

Ótitlað

Hæhæ

Jólaballið

Við viljum byrja á að minna ykkur á jólaballið sem haldið verður næstkomandi föstudag 4. desember. Jólaballið byrjar klukkan 14:00 og viljum við biðja ykkur um að sækja börnin um kl. 13:00 (ekki seinna en 13:30). Jólasveinninn mun svo kíkja á okkur um klukkan 14:15.
Sá hátturinn hefur verið hafður á að foreldrar barna á Bakka koma með veitingar fyrir fullorðna og foreldrar barna á Bóli koma með veitingar fyrir börnin. Afar, ömmu og systkini eru velkomin að koma með og eiga skemmtilega stund með okkur. 
                                         

Kaffihúsaferðin í Grasagarðinn 7. desember hjá Bakka breytist aðeins. Það var hringt í okkur frá Grasagarðinum og þær höfðu tvíbókað fyrir hádegi þann 7. des. þannig að börn sem fædd eru 2005 (og áttu að fara þann 7.des f.h) fara á kaffihús í Grasagarðinum 11. desember í staðinn. Elstu börnin (2004) fara 7. desember eftir hádegi eins og stendur á stundatöflunni.

Annars eru allir komnir í jólaskap hér á Skerjó. Við erum í rólegheitum að búa til jólaskraut og syngja jólalögin.
   
            Jólaföndur                      Aðventustund á Bakka

Matseðill fyrir desember er kominn inn á heimasíðuna

kv Bakki og Ból

Flettingar í dag: 84
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364961
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar