|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
06.01.2010 13:35ÓtitlaðHæhæ GLEÐILEGT NÝTT ÁR !! Nú fer starfið að hefjast hjá okkur aftur eftir langt og gott jólafrí Við byrjum á fullum krafti í næstu viku og finnum okkur þá eitthvað skemmtilegt þema til að vinna með. Búið er að setja inn stundaskrá fyrir janúar inn á heimasíðuna og einnig er búið að senda þær til ykkar í tölvupósti. Skólahópurinn hefur farið í KR heimilið annan hvern miðvikudag fyrir jólin, en nú verður breyting á því, við ætlum að fara alla miðvikudaga. Það hafa allir svo gaman og gott af þessari hreyfingu og var því ákveðið að fara vikulega í KR heimilið. Viljum við biðja foreldra um að láta börnin hafa með sér íþróttaföt alla miðvikudaga. Einnig er hægt að geyma íþróttafötin í leikskólanum og taka öðru hverju heim og þvo ef þið viljið það. Það er búið að setja inn fullt af nýjum myndum inn síðan í desember, frá heimsókn í þjóðmynjasafnið, kirkjuferðinni og fleira skemmtilegt. Á morgunn fimmtudag verður bókadagur á leikskólanum og mega börnin koma með eina bók í leikskólann og við reynum að lesa sem flestar bækurnar. MUNIÐ AÐ MERKJA BÆKURNAR . kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 88 Gestir í dag: 34 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364965 Samtals gestir: 82637 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 12:09:45 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |