Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

13.01.2010 10:13

Ótitlað

Hæhæ

Í næstu viku, föstudaginn 22. jan byrjar þorrinn og erum við byrjuð að búa til þorrahatta sem börnin verða með á þorrahátíðinni. Eins og undanfarin ár verðum við með þorramat í boði og eru börnin mjög spennt að smakka og þá sérstaklega hákarlinn :) Gaman væri ef börnin mættu í lopapeysum í leikskólann þennan dag til að hafa daginn sem þjóðlegastann.
 
Kisuhópur að mála þorrahatta

Í næstu viku ætlum við að fara að byrja með nýtt þema og varð Tröllaþema fyrir valinu. Öll börnin á Bakka og elstu börnin á Bóli verða með í þessu þema.

Skessan í fjallinu

Fimmtudaginn 21. janúar verður leiksýningin um Einar Áskel sýnd hér á leikskólanum og byrjar hún kl. 9:30.

Úr leiksýningunni um Einar Áskel

Matseðillinn er kominn inn á heimasíðuna

kv Bakki og Ból

Flettingar í dag: 68
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364945
Samtals gestir: 82633
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:52:21

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar