Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

20.01.2010 09:54

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum byrja á að minna á vasaljósadaginn sem verður á morgunn fimmtudag (21. jan). Þá mega börnin koma með vasaljós í leikskólann. Við ætlum að hafa öll ljós slökkt um morguninn og verður gaman að leika sér með vasaljósið í myrkrinu.

Á morgunn fimmtudag fáum við einnig að sjá leikritið um hann Einar Áskel og byrjar það klukkan 9:30. Þessi leiksýning er í boði  foreldrafélagsins.


Á föstudaginn 22. jan. verður þorrahátíð hér á Skerjagarði. Þá fáum við að smakka þorramat og gaman væri ef börnin eiga lopapeysur, að mæta í þeim þennan dag.

Við erum aðeins byrjuð að vinna með tröllaþemað. Við höfum verið að spjalla um tröllin og heyra hvað börnin vita um tröllin. Við höfum verið að lesa tröllasögur, syngja tröllalög og fara í ýmiskonar tröllaleiki. Í næstu viku ætlum við svo að fara á bókasafnið og sækja fleiri tröllabækur og fáum þá einnig sögustund á bókasafninu. Börn sem eru fædd 2004 og 2005 fara á bókasafnið.
      
Mikael að skoða tröllabók      Börnin breyta sér í tröll

kv Bakki og Ból
Flettingar í dag: 84
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364961
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar