|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
27.01.2010 10:13ÓtitlaðHæhæ Það er búið að vera nóg að gerast hjá okkur í síðustu daga. Á fimmtudaginn var bæði vasaljósadagur og einnig fengum við að sjá leikritið um hann Einar Áskel. Börnunum þótti rosalega gaman að horfa á leikritið, bæði þau yngstu og elstu. Börnin sátu allan tímann og horfðu á með áhuga. Vasaljósadagurinn var líka skemmtilegur og mættu öll börnin með vasaljós :) Vasaljósadagur Leikritið um hann Einar Áskel Þorrahátíðin heppnaðist líka vel. Börnin voru búin að búa til þorrahatta og mörg mættu þau í lopapeysu sem gerði stemninguna skemmtilega. Í boði var allskonar þorramatur s.s. hákarl, hrútspungar, lundabaggi, lifrapylsa, harðfiskur, sviðasulta og svo auðvitað grjónagrautur. Harðfiskurinn og lifrapylsan voru vinsælust en mörg börn smökkuðu hákarlinn, hrútspungana og lundabagga við mis-miklar vinsældir :) Þorrahátíðin Nú eru allir hópar bæði á Bakka og á Bóli farin að skoða tröllin í hópastarfinu. Tveir elstu árgangarnir (2004 og 2005) fóru á bókasafnið og fengu sögustund þar. Lesin var sagan um Skessuna sem leiddist. Síðan fengu þau að láni nokkrar tröllabækur á bókasafninu sem við getum lesið. Við höfum líka farið í allskonar tröllaleiki bæði úti og inni og teiknað tröllamyndir. Freyja Dís og Lára Ósk teikna Leikritið um kiðlingana þrjá tröllamyndir . og tröllið undir brúnni. Í næstu viku fimmtudaginn 4. febrúar verður síðan spiladagur og mega börnin þá koma með eitt spil (eða púsl) að heiman. Munið að merkja spilin vel :) Föstudaginn 26. febrúar verður námskeiðsdagur hjá starfsfólki Skerjagarðs og verður þá leikskólinn lokaður. ps. það eru nýjar myndir í albúminu. kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 83 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364960 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |