|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
05.02.2010 10:43ÓtitlaðHæhæ Það er búið að vera nóg að gera hjá okkur í tröllaþema bæði á Bakka og Bóli. Það er ýmislegt búið að vera að gera t.d. að æfa tröllaleikrit, teikna tröllamyndir, búa til tröllafjall og fleira skemmtilegt. Skólahópurinn okkar fór í heimsókn í Melaskóla á miðvikudaginn. Það var lesin saga fyrir þau á bókasafninu og voru þau auðvitað öll til fyrirmyndar. Síðan fengu þau að fara heim með skólabílnum. Í gær fimmtudag var spiladagur og var það mjög skemmtilegt. Við spiluðum allan morguninn og skiptust börnin á að spila saman. Það er alltaf gaman að læra ný spil :) Hann Sigurvin frá kirkjunni kom í heimsókn til okkar í dag föstudag. Við sungum saman, hann sagði okkur mjög skemmtilega sögu og svo komu Rebbi refur og Mýsla í heimsókn líka :) Við viljum síðan minna ykkur á að fara yfir hólf barnanna ykkar í lok hvers dags og athuga hvort það séu ekki örugglega hreinir vettlingar í hólfunum og taka óhreina vettlinga með heim, kíkja líka í þurrkskápinn. Það hefur verið allt of mikið um það að börnin séu ekki með vettlinga eða þá að vettlingarnir hafa verið svo óhreinir og rakir frá því daginn áður að það er ekki hægt að fara í þá. Einnig viljum við biðja ykkur um að taka með pollagalla heim á föstudögum :) kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 84 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364961 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |