Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

24.02.2010 10:47

Ótitlað

Hæhæ

Við viljum byrja á að minna á að leikskólinn verður lokaður föstudaginn 26. febrúar vegna námskeiðsdags starfsfólks.

Á morgunn fimmtudag 25. febrúar verður dótadagur og mega börnin þá koma með eitt dót í leikskólann. Munið að merkja dótið :)

Tröllaþema:

Börnin hafa verið að búa til ýmislegt í tengslum við tröllaþemað. Börnin á Bóli eru að búa til tröllagrímur. Börnin á Bakka hafa verið að teikna tröllamyndir á glærur, búa til tröll úr verðlausum efnivið og margt fleira skemmtilegt.
 
Teiknað á glærur           Búið til Tröllagrímur

Við höfum einnig verið dugleg að fara í gönguferðir um hverfið og skoða ,,tröllasteina,,.
 
Börnin á Bóli að finna tröllastein

Yngri börnin á Bakka (2005 og 2006) og elstu börnin á Bóli (2006) fóru í strætóferð upp í Gerðuberg. Þar skoðuðum við tvær sýningar sem voru í gangi.
1) ,,Þetta vilja börnin sjá,,  er sýning á myndskreytingum í íslenskum barnabókum sem komu út 2009.
2) ,,Strengir,, er sýning á leikbrúðum, grímum og búningum Messíönu Tómasdóttur frá nokkrum sýningum Strengjaleikhússins um þriggja áratuga skeið.
 
Gerðuberg

ps. það eru nýjar myndir í myndaalbúminu.

kv Bakki og Ból


Flettingar í dag: 74
Gestir í dag: 30
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364951
Samtals gestir: 82633
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:06:50

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar