|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
17.03.2010 10:30ÓtitlaðHæhæ Tröllaþema: Enn er verið að vinna með tröllaþemað og eru elstu börnin að búa til tröll úr verðlausum efnivið. Yngri börnin eru að klára tröllagrímurnar sínar. Tröll úr verðlausum efnivið Í gær þriðjudag fórum við í skemmtilega ferð í Reykjanesbæ. Við fórum af stað kl. 10 og komum aftur heim um kl. 14. Þannig að þetta var löng og skemmtileg ferð. Við fórum að skoða ,,Helli skessunnar,,. Þetta var mjög skemmtilegt og ævintýri líkast fyrir börnin að fá að sjá og heyra í skessunni og prófa að leggjast í stóra rúmið hennar. Við tókum með okkur nesti og fengum að borða það hjá bátasafninu í Duushúsi þar sem veðrið lék ekki við okkur. Það eru fullt af myndum frá ferðinni í myndaalbúminu !!!! Síðastliðinn fimmtudag var gleraugnadagur og komu börnin með margskonar gleraugu í leikskólann Gleraugnadagur ATH!!! Við viljum biðja ykkur um að fara vel yfir hólfin hjá börnunum ykkar og taka með blauta og skítuga vettlinga heim og koma með hreina og þurra vettlinga aftur í leikskólann. Það er frekar óþægilegt að fara í blauta og skítuga vettlinga út að leika og leikskólinn á ekki auka vettlinga til að lána. Eins er gott að skoða hvernig pollagallarnir líta út og taka með heim og þvo. Í næstu viku (fimmtudag 25.mars) ætlum við að hafa kósýdag og mega börnin þá koma í náttfötum, með kodda, teppi, bangsa eða bara það sem þeim finnst vera kósý Það eru komnar nýjar myndir í myndaalbúmið. kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 84 Gestir í dag: 32 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364961 Samtals gestir: 82635 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:46:16 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |