Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

21.04.2010 10:48

Ótitlað

Hæhæ

Hreinsunardagurinn sem átti að vera næstkomandi laugardag (24.apríl) verður aflýst. Við ætlum að reyna að hittast einhvern laugardag í maí þegar veðurspáin verður góð. Við munum auglýsa það með stuttum fyrirvara.

Börn sem fædd eru 2004 og 2005 fóru í síðustu viku á sýningu í Gerðubergi sem heitir Krummi krunkar úti. Þetta var mjög skemmtileg sýning þ
ar sem börnin tóku þátt. Þau voru búin að búa til krummagrímur og æfa nokkur krummalög fyrir sýninguna.
 
Krummar á krummasýningu

Við viljum minna ykkur á að koma með viðeigandi útifatnað á börnin. Það eru margir sem eru ekki með stígvél eða pollagalla þegar það rignir, en það er nauðsynlegt að hafa þennan fatnað alltaf með. Það vantar einnig húfur hjá mörgum og líka vettlinga.

Opið hús og útskrift elstu barnanna sem verður laugardaginn 1. maí frá kl. 10-12. Sá háttur hefur verið hafður á að foreldrar hafa komið með bakkelsi sem sett er á sameiginlegt hlaðborð. Foreldrar barna á Bakka hafa komið með bakkelsi fyrir fullorðna fólkið og foreldrar barna á Bóli hafa komið með bakkelsi fyrir börnin.  Skerjagarður hefur svo skaffað drykki.

Hlaðborð á opnu húsi 2009.

Kv. Bakki og Ból


Flettingar í dag: 83
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364960
Samtals gestir: 82635
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:23:13

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar