Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

12.05.2010 10:21

Ótitlað

Hæhæ

Nú er kominn tími fyrir sólarvörn. Við viljum biðja ykkur um að bera sólarvörn á barnið ykkar áður en það kemur í leikskólann á morgnanna. Einnig viljum við biðja ykkur um að koma með sólarvörn og geyma í hólfinu  hjá barninu (muna að merkja). Við munum svo bera á þau eftir hádegi á sólardögum.

Einnig viljum við biðja ykkur um að koma með létta skó á börnin nú þegar það eru farið að vera þurrt og hlýtt úti. Auðvitað þurfa stígvélin líka að vera með alla daga.

Á mánudaginn 10. maí og þriðjudaginn 11. maí fóru börn sem fædd eru 2004 og 2005 í Húsdýragarðinn. Þar skoðuðu þau dýrin, vísindatjaldið og léku sér í leiktækjunum. Síðan voru grillaðar pylsur og skemmtu sér allir rosa vel emoticon
 
                    Gaman í húsdýragarðinum

Nú þegar sumarstarfið er hafið erum við mikið úti og munum við reyna að nýta næsta nágrenni til að leika. Það eru tveir rólóar í göngufæri og svo er mjög stutt að labba niður í fjöru. Einnig eru tveir stórir grasblettir nálægt okkur þar sem hægt er að fara í ýmsa leiki og boltaleiki.
Við höfum tekið fram fullt af nýju sumardóti sem skemmtilegt er að leika með úti t.d. húllahringi, krítar, sápukúlur og fleira.
 
       Úti á ,,skógarróló,,        Leikið með sumardót

Á föstudaginn verður svo Heilsuskokk og munum börnin þá hlaupa smá hring og fá svo ávexti í verðlaun emoticon

Það eru komnar nýjar myndir í myndalbúmið

kv Bakki og Ból

Flettingar í dag: 75
Gestir í dag: 31
Flettingar í gær: 152
Gestir í gær: 53
Samtals flettingar: 364952
Samtals gestir: 82634
Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:30:47

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar