|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
25.06.2010 11:06ÓtitlaðHæhæ Sumarhátíðin var haldin þann 16.júní. Þá mættu börnin í furðufötum í leikskólann. Við fórum í skrúðgöngu um hverfið og lékum okkur og dönsuðum úti við tónlist. Í hádeginu var svo pizza og ís í eftirrétt. Sumarhátíðin Skólahópurinn fór í útskriftarferð í vikunni. Þau fóru inn í Kópavog á Rútstúnið og léku sér þar. Síðan fóru þau heim til Ellu í heitapottin og fengu pizzu í hádegismat. Þetta var mjög skemmtileg ferð og skemmtu allir sér vel. Útskriftarferðin Snúðaskokkið var haldið í gær og voru krakkarnir mjög dugleg að hlaupa. Þegar börnin komu svo í mark eftir mislang hlaup fengu allir metalíur og snúð. Snúðaskokkið Við minnum svo á að leikskólinn fer í sumarfrí fimmtudaginn 1. júlí (síðasti dagur fyrir sumarfrí er miðvikudagurinn 30.júní) :) Við opnum síðan aftur þriðjudaginn 3. ágúst. Á miðvikudaginn 30. júní (Síðasta dag fyrir sumarfrí) verður svo nestisdagur. Þá mega börnin koma með nesti að heiman. Nýjar myndir í myndaalbúminu :) Matseðill fyrir næstu viku er kominn inn á heimasíðuna kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 65 Gestir í dag: 29 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364942 Samtals gestir: 82632 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 10:46:03 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |