|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
27.08.2010 12:10ÓtitlaðHæhæ Í gær var nestisdagur hjá Bakka og Bóli og fóru öll börnin í gönguferð og borðuðu nestið úti. Elstu börnin á Bakka fóru í strætóferð upp í Gerðuberg og tóku nestið með :) Nestisferð yngri börn á Bakka Nestisferð eldri börn á Bakka Hópastarf er farið í gang hjá Bakka og var áhugi hjá börnunum að vinna með umferðina í næsta þema. Hreyfingin byrjar í september. Eldri börnin á Bakka fara í KR heimilið á miðvikudögum og mega þau koma með íþróttaföt með sér. Gott að börnin séu ekki mætt seinna en kl. 8:50. Yngri börnin fara í hreyfingu í Gleðigarð á þriðjudögum. Berglind tónlistarkennari byrjar einnig með tónlistina í september. Stjörnurnar (skólahópurinn) er aðeins byrjaður í skólahóp og eru tvisvar sinnum í viku. Stjörnurnar (skólahópur) Við ætlum að fara að stað með vinabangsa á Bakka og Bóli. Þá kemur barnið heim með bangsa og dvelur hann hjá því í einn dag. Bók fylgir með bangsanum þar sem gaman væri ef þið foreldrar mynduð aðstoða börnin að skrifa í (útskýringar fylgja með bókinni). Á Bakka verða tveir bangsar einn fyrir eldri hópinn sem heitir Hlynur og einn fyrir yngri hópinn sem heitir Krúttið. Á Bóli verður einn bangsi fyrir eldri börnin sem heitir Birna. Krúttið á Bakka Margt spennandi að gerast hjá okkur á næstunni Það er komnar nýjar myndir inn í myndaalbúmið bæði hjá Bakka kv Bakki og Ból Flettingar í dag: 75 Gestir í dag: 31 Flettingar í gær: 152 Gestir í gær: 53 Samtals flettingar: 364952 Samtals gestir: 82634 Tölur uppfærðar: 6.2.2012 11:30:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |