|
Leikskólinn Skerjagarður Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri. |
|
Færslur: 2007 Janúar30.01.2007 12:53Smá fréttir frá Bóli og BakkaHæhæ Vorum að setja inn nýjar myndir í albúmið okkar. Það eru komnar nýjar myndir í ,,Daglegt starf á Bóli,, og einnig í ,,daglegt starf á Bakka jan ,, og nýtt albúm í tröllaþema hjá Bakka (Ljónahópur og Hlaupahópur 24. janúar).Við komum til með að bæta oft inn í eldri albúm þá helst þegar verið er að setja inn myndir frá daglegu starfi. En við látum vita hér á síðunni um leið og við setjum nýjar myndir inn. Það eru komnar stundaskrár fyrir febrúar inn á heimasíðuna okkar ,Stundaskrár,, bakki/ból. Við viljum líka minna ykkur á að kíkja á óskilafötin hjá okkur. Það fyllist mjög fljótt hjá okkur karfan og viljum við endilega reyna að koma öllu til skila. Einnig að minna foreldra á að hafa nóg af útfatnaði fyrir börnin sín (vettlinga 2 pör, húfur, ullarsokka, hlýja peysu, stígvél, kuldaskó, regnföt og útigalla) og einnig aukaföt í töskunni (buxur, peysu, sokka(buxur) og nærföt. Fréttir frá Bóli Við erum búin að fá 3 ný börn á deildina okkar. Þau heita Axel Orri, Erna Ingibjörg og Marinó Bjarni. Aðlögunin gekk mjög vel og eru allir glaðir og ánægðir. Við bjóðum þau velkomin til okkar. Við vorum að byrja í þemastarfi á Bóli og eru litlu krílin okkar (fædd 2005) að vinna með litina. Við byrjum á bláum lit og vinnum með hann í hinum ýmsu myndum. Við syngjum um litina, lesum og málum og margt fleira skemmtilegt. Stóru börnin okkar (fædd 2004) eru í þema ,, ég sjálfur, fjölskyldan og umhverfið,,. Þau eru 2x í viku í þemastarfi. Smá breyting verður með kjallarann (Gleðigarð) eftir kaffi. Börn sem eru fædd 2004 verða í kjallaranum á mán/mið/föstudögum og börn sem fædd eru 2005 verða í kjallaranum eftir kaffi á þriðju- og fimmtudögum. Fréttir frá Bakka Við á Bakka höfum fengið til okkar leikskólakennaranema á öðru ári sem heitir Erna. Hún ætlar að vera hjá okkur í 7 vikur og kynnast starfinu á leikskólanum okkar. Hún mun vinna nokkur verkefni með börnunum og þar á meðal í könnunaraðferðinni. Það er mjög gaman að fá nema til okkar og hlakkar okkur mikið til að vinna með henni í þessar vikur sem hún verður hjá okkur. Við erum enn að vinna með tröllin í þemastarfi og gengur það mjög vel. Við erum búin að vera að búa til tröll úr ýmsum efnivið t.d. steinum, blómapottum, jógúrtdósum, skinni, gæru, og mörgu fleiru sem börnin hafa fundið. Eldri börnin horfðu á spólu sem heitir Íslenskar þjóðsögur og ævintýri. Þar var leikin tröllasagan um Gilitrutt og sagan af tröllkerlingunni Kolku sögð og fleiri skemmtilegar sögur. Yngri börnin hafa verið að hlusta á tröllasögur og fengið að sjá myndirnar úr bókinni varpaðar upp á vegg með myndvarpa. Þetta gerir söguna meira spennandi og ná þau að fylgjast betur með. Þau fóru einnig í strætóferð um bæinn í leit að tröllum. Þau sáu eitt tröll sem var að fara í bílinn sinn. Það var fylgst vel með því þar til það var farið í burtu :-) Í haust fundu tveir elstu hóparnir tré út á skógarróló sem þau skírðu ,,Vinatré,,. Við höfum farið einu sinni í mánuði og kíkt á tréið okkar og fylgst með hvernig það breytist eftir árstíma og tekið myndir af því. Við fórum fyrst í október og var þá tréið með fullt af laufi. Svo fórum við aftur í nóvember og var þá bara allt lauf horfið nema tvö lítil lauf sem héngu enn á. Fannst börnunum þetta mjög áhugavert. Svo fórum við aftur í desember og skreyttum vinatréið okkar með jólaskrauti sem börnin bjuggu til sjálf. Í morgunn fórum við svo að kíkja á tréið okkar og var þá jólaskrautið enn á tréinu. Við tókum skrautið niður og tókum svo mynd af tréinu. Það verður gaman að fylgjast með vinatréinu okkar núna í vor þegar laufið fer að koma á tréið og springa út. Bestu kveðjur starfsfólk á Bóli og Bakka
24.01.2007 14:16Nýjar myndir í albúmiðHæhæ Vorum að setja inn nýjar myndir í albúmið í ,,Daglegt starf á Bóli,, og svo nýtt albúm ,,Útivera á Bóli janúar 2007,,. Kíkið endilega á þær. Munið svo myndatökuna á morgunn fimmtudag. Kv frá okkur á Skerjagarði 22.01.2007 22:06Sögustund á bókasafninu og bíó í kjallaranumHæhæ Takk fyrir allar kveðjurnar. Það er mjög gaman að heyra frá ykkur og vonumst við til að þið verðið dugleg að skrifa í gestabókina og/eða á bloggið hjá okkur ef það er eitthvað sem þið viljið koma til skila eða bara að láta heyra frá ykkur. Við viljum byrja á að minna á ljósmyndarann sem kemur á fimmtudaginn (en ekki í dag þriðjudag eins og búið var að auglýsa) til okkar. Ef einhver á eftir að borga þá þarf að gera það sem fyrst og senda kvittun til okkar skerjagardur@skerjagardur.is um það sé búið að borga eða koma með kvittunina til okkar. Annars er búið að vera nóg að gera hjá okkur. Við á Bakka fórum t.d. í sögustund á bókasafnið. Við fórum í tveimur hópur þ.e. eldri og yngri hópar. Eldri börnin fóru á fimmtudaginn og yngri börnin í dag. Við fórum með strætó og er það alltaf jafn spennandi. Þau eldri hafa farið nokkrum sinnum á bókasafnið með strætó en þau yngri voru mörg að fara í fyrsta skiptið og var það mjög gaman. Það var bókasafnsfræðingur sem tók á móti okkur og las fyrir okkur tvær bækur. Fyrir eldri börnin var lesin saga sem heitir ,,Eigingjarni risinn,,. Börnin voru svo áhugasöm og hlustuðu svo vel að bókasafnsfræðingurinn las aðra sögu fyrir þau en það var sagan af Greppikló. Þegar hún var búin að lesa fyrir okkur kom hún með fullt af leikfangabrúðum af persónum úr ýmsum barnabókum t.d. greppikló, Línu Langsokk, Póstin Pál og fleiri skemmtilegar persónur. Fyrir yngri börnin var lesin sagan um Sel. Þegar búið var að lesa og leika smá var farið aftur með strætó í leikskólann og fengið sér að borða namm namm. Okkur (börnum og starfsfólki) fannst mjög skemmtilegt að fá svona sögustund á bókasafninu og eigum örugglega eftir að gera þetta oftar. Í kuldanum á föstudaginn var lítið farið út og þar sem við vorum að fá sjónvarp og video í leikskólann komum við okkur vel fyrir í Gleðigarði (kjallaranum) með teppi og huggulegheit og horfðum á Línu Langsokk. Allir höfðu gaman af. Það getur verið mjög gott að hafa sjónvarp og video í leikskólanum okkar til að nota við ýmis tækifæri. Við höfum stundum tekið videospólu í tengslum við ýmis þema sem við höfum verið með í þemastarfi, einnig höfum við verið að lesa bækur fyrir börnin eins og t.d. um Benedikt búálf og hefur þá verið gaman að geta horft líka á myndina um hann. Svo getur líka verið mjög gott og gaman á köldum dögum eins og var á föstudaginn að hafa það kósí inni og horfa á eina mynd öll saman :-) Kveðja frá Bakka 17.01.2007 12:36Húrra húrra :-) Heimasíðan er komin í gagniðHér sitjum við sveittar við að setja inn skemmtilegar myndir frá þemastarfi frá því í morgunn og í gær. Vonandi verður gaman fyrir alla að geta fylgst betur með hvað við erum að gera í leikskólanum. Nú erum við farin að vinna með tröllin og er mikill áhuga hjá börnunum á því. Við höfum verið að skoða bækurnar hans Brians Pilkingtons og unnið út frá þeim. Við erum búin að fara á bókasafnið og ná í nokkrar bækur um tröll. Börnin eru svo búin að teikna mynd af tröllum, gera verndargrip, syngja tröllalög, æfa þulur og læra tröllaleik og ýmislegt fleira. Á morgunn förum við á bókasafnið í sögustund með elstu tvo árgangana, þar verður lesin fyrir okkur tröllasaga. Kveðja Sóldís og Inga (hópstjórar Ljónahóps og Hlaupahóps)
Flettingar í dag: 132 Gestir í dag: 35 Flettingar í gær: 197 Gestir í gær: 47 Samtals flettingar: 367723 Samtals gestir: 83301 Tölur uppfærðar: 22.2.2012 19:50:47 |
Vafraðu umEldra efni
Um mig Nafn: Leikskólinn SkerjagarðurFarsími: 8221919Tölvupóstfang: skerjagardur(at)skerjagardur.isHeimilisfang: Bauganes 13Staðsetning: SkerjafjörðurHeimasími: 5518088Um: Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.Tenglar |