Leikskólinn Skerjagarður

Einkarekinn Leikskóli fullur af lífi og fjöri.

Færslur: 2007 Febrúar

27.02.2007 11:38

Dagskrá mars mánaðar og fréttir frá Bakka og Bóli

Hæhæ

Vorum að setja inn stundatöflu fyrir mars mánuð. Það er ýmislegt sem við ætlum að bralla  í næsta mánuði. Það verður t.d. Blátt ball hjá börnunum á Bóli þar sem þau eru búin að vera að vinna með bláa litinn og ætlum við að enda það með bláu balli á föstudaginn (2 mars). Þá mæta allir í einhverju bláu eða með eitthvað blátt á sér.
Á Bakka verður tröllagrímuball 19. mars en þá ætla krakkarnir að nota grímurnar sem þau bjuggu til í tröllaþemanu og breyta sér í tröll og dansa og skemmta sér. 
Við ætlum svo að hafa spila/púsldag 8. mars en þá mega börnin koma með spil eða púsl með sér í leikskólann (við viljum bara biðja ykkur um að merkja allt vel sem komið er með í leikskólann).  
Þann 15. mars verður svo foreldrakaffi á Bakka og bóli.  Á Bakka verður sýning á verkefnum sem börnin hafa verið að vinna að í þema þ.e. tröllaþema og slökkviliðsþema.  
Í lok mánaðarins verður svo bangsadagur hjá Bóli og dótadagur hjá Bakka. Þá mega börnin koma með einn bangsa eða eitt dót að heiman.
Þann 14. mars fer skólahópurinn í heimsókn í Melaskóla og fær að fara í leikfimi með börnunum þar.
Hann Sigurvin frá kirkjunni kemur svo alltaf til okkar fyrsta fimmtudag í mánuði. Hann syngur með börnunum og segir þeim sögur ásamt ýmsum gestum sem leynast í töskunni hans t.d. Engilráð og Rebbi refur.

Bakkaféttir

Nú er slökkviliðsþemað í fullum gangi. Börnin eru búin að teikna sína fyrstu mynd af einhverju sem þau tengja við slökkviliðið. Það hefur einnig verið gaman að sjá hvernig börnin hafa tengt þemað okkar í t.d. einigakubbana.  Þar hafa börnin kubbað ýmsilegt í sem tengist þemanu okkar t.d. slökkviliðsbíla, slökkvistöð, brunahana, eld og notað kubbana sem brunaslöngu.

Í gær fórum tveir elstu hóparnir í heimsókn á slökkvistöðina að skoða slökkviliðsbíl og sjúkrabíl. Þar tóku nokkrir slökkviliðs- og sjúkraflutningamenn á móti okkur og sýndu okkur það helsta sem tengist slökkviliði og sjúkraflutningum.  Börnin fengu að fara inn í slökkviliðsbílinn og líka í sjúkrabílinn og prófa þar ýmislegt sem notað er til að bjarga fólki. Þau fengu t.d. að prófa spelku á hendina, hálskraga, hjálma og fleira. Þau fengu að sjá allar brunaslöngurnar, klippur og mörg önnur tæki sem notuð eru við að slökkva eld. Áður en við fórum þá bjuggu börnin til bók sem þau tóku með til að teikna myndir úr ferðinni í. Áður en við fórum af stað þá spjölluðum við um slökkviðliðið og komu börnin með nokkrar spurningar sem þau vildu spyrja slökkviliðsmennina að og settum við þessar spurningar inn í bókina þeirra. Í lok heimsóknarinnar spurðu svo börnin slökkviliðsmennina þessara spruninga og fengu svör við þeim.  Við fengum ekki að fara frá slökkvistöðinni nema syngja nokkur lög fyrir slökkviliðsmennina og sungu börnin nokkur ,,eldlög,, fyrir þá og fengu gott klapp fyrir

Bólfréttir

Við á Bóli erum búin að vera að vinna með bláa litinn núna í nokkrar vikur. Við ætlum að klára það núna í þessari viku og hafa Blátt ball á föstudaginn. Næsti litur sem við tökum fyrir er rauður og munum við vinna með hann í nokkrar vikur. Eldri börnin á Bóli eru enn að vinna með ,, ég sjálfur og umhverfið mitt,,.

kv Bakki og Ból


21.02.2007 11:37

Öskudagur á Skerjó

Hæhæ

Vorum að setja inn myndir frá öskudagsballinu í dag.

Börnin komu öll í búningum eða náttfötum og skemmtu sér vel. Það var skemmtilegt að sjá hvað börnin voru í mismunandi búningum þetta árið og allir ánægðir með sitt   Við vorum öll saman niðri á Bóli þar sem búið var að hengja upp poka sem í voru margir minni pokar með snakki og saltstöngum í. Börnin slóu svo í pokann eitt og eitt þar til hann rifnaði og fengu þá allir einn poka með snakki í nammi namm. Þegar búið var að borða snakkið þá var slegið upp balli og skemmtu allir sér vel. Við dönsuðum súpermandansinn, fórum í ævintýralestina um leikskólann og fleira skemmtilegt.                                                                                       Skólahópurinn fór svo í smá gönguferð út í Skerjaver og sungu og fengu epli í staðinn. 

       

kv Ból og Bakki

  

20.02.2007 11:32

Skerjófréttir

Hæhæ

Það eru komnar nýjar myndir í albúmið okkar. Þau albúm sem eru óflokkuð eru með nýjum myndum í. Stundum bætum við myndum í gömul albúm og þá fer það sjálfkrafa í óflokkað sem sýnir að það séu nýjar myndir í því. Við reynum svo að setja inn nýjar myndir vikulega (þ.e. á þriðjudögm).

Í gær var bolludagur og voru bollur í aðalhlutverki hjá okkur :-) VIð fengum fiskibollur í hádegismat og svo rjómabollur í kaffinu namm namm. Í dag sprengidag fáum við svo auðvitað saltkjöt og baunir og borðum okkur pakksödd. Á morgunn er svo öskudagur og mega börnin þá koma í furðufötum. Þá sláum við upp furðufataballi og sláum (,,köttin úr tunnunni,,) eða frekar ,,snakkið úr pokanum,, hehe.  Svo verður pylsupartý í hádeginu.

Bakkafréttir

Nú erum við komin aðeins af stað með slökkviliðsþemað. Við erum búin að fara á bókasafnið og fá bækur að láni. Við gerðum hugmyndavefinn í gær og eru krakkarnir mjög fróðleiksfús þegar kemur að þessu efni. Við fórum svo í kjölfarið í göngutúr um hverfið að leita að brunahönum. Við fundum tvo brunahana og töldu börnin hvað það væru mörg skref á milli þeirra og komust að því að þau voru 106. Við höfum svo verið að syngja nokkur lög þar sem slökkvibílar eða eldur koma við sögu og eru þessi lög hér á síðunni okkar undir söngtextar. Í þessari viku munu börnin svo teikna sína fyrstu mynd um slökkvilið og verður gaman að sjá hvað kemur frá þeim.  Í næstu viku munum við svo fara í heimsókn á Slökkvistöðina með tvo elstu árgangana og verður það örugglega mjög gaman. Svo sjáum við hvað börnin vilja vinna út frá þeirri ferð.

 

Kveðja Ból og Bakki

 

 

13.02.2007 11:44

kósídagur, bolludagur, sprengidagur og öskudagur

Hæhæ

VIð viljum minna á kósídaginn sem verður á fimmtudaginn. Þá mega börnin koma  með eitthvað kósí að heiman. Það getur t.d verið bangsi, teppi, koddi, bók, rólegur geisladiskur eða hvað sem börnunum þykir kósí :-) Við ætlum að eiga rólegan og kósí dag í leikskólanum, hlusta á músík, hafa dýnur á gólfum til að liggja á, kósí birtu og bara það sem börnunum dettur í hug að gera.

Það fer óðum að styttast í bolludag, sprengidag og öskudag en þeir eru í næstu viku (19. 20 og 21. febrúar). Við erum byrjuð að æfa nokkur lög sem tengjast þessum dögum og eru textarnir hér á síðunni undir söngtextar.  Börnin eru líka byrjuð að gera bolluvendi og svo ætlum við að taka upp gamla og góða hefð og gera nokkra öskupoka með börnunum.  Á öskudaginn (miðvikudaginn 21. febrúar) verður fuðrufataball og mega börnin þá koma í furðufötum. Við viljum biðja ykkur foreldra um að takmarka aukahluti sem fylgja með búningunum því að þeir vilja týnast.

Nokkrar fréttir af Bakka.

Nú erum við að klára tröllaþemað sem við erum búin að vera að vinna með í nokkrar vikur. Þetta er búið að vera mjög skemmtilegt og hafa börnin haft mikið gaman af. Börnin hafa gert ýmislegt í tengslum við þemað t.d. teiknað tröllamynd, gert tröll úr steinum eða öðrum efnivið, búið til eitt stórt tröllafjall saman, búið til verdargripi, tröllagrímur, farið í sögustund á bókasafnið, svo fengum við leikskólakennara til koma til okkar og segja okkur tröllasögu frá eigin brjósti, lært tröllalög, tröllaleiki og margt fleira skemmtilegt.  

Næsta þema sem við ætlum að taka fyrir er ,,slökkviliðið,,. Erna leikskólakennaranemi ætlar að vinna með börnunum í þessu þema og skipuleggja það. Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og fróðlegt að fá að kynnast þessu betur. Við erum aðeins byrjuð að ræða um þetta við börnin og er mjög mikill áhugi hjá þeim og margar spurningar sem hafa vaknað sem við svo reynum að fá svör við í sameiningu.

 

06.02.2007 12:22

Smá tröllafréttir ;-)

Hæhæ

Það eru komnar nýja myndir frá Bóli og Bakka í myndaalbúmið okkar.

Þá erum við búin að endurheimta hana Mombi okkar aftur í eldhúsið eftir fæðingarorlof. Það er mjög gott og gaman að fá hana aftur til okkar. Elisabeta hætti um mánaðarmótin og þökkum við henni fyrir samstarfið.

Smá fréttir af Bakka

Nú erum við á Bakka að búa til stórt tröllafjall(helli) þar sem tröllin okkar búa. Þetta er hópverkefni þar sem öll börnin fá að taka þátt, hjálpast að, komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig fjallið á að líta út og fleira.

 

Við fengum leikskólakennara sem heitir Berglind í heimsókn til okkar á Bakka til að segja okkur tröllasögu. Hún er sérfræðingur í að segja sögu frá eigin brjósti og var alveg frábært að hlusta á hana og fylgjast með þegar hún fór úr einu hlutverkinu í annað. Hún sagði okkur söguna um hann Tuma tröllastrák sem hún hitti þegar hún var lítil stelpa. Hún villtist upp á fjalli og þá kom Tumi og vildi hjálpa henni. Hún fór með honum í hellinn hans og hitti þar tröllamömmu og tröllapabba. Tröllamamma var að búa til tröllapönnukökur og fékk Berglind að smakka hjá henni. Svo fóru Tumi og tröllapabbi með henni aftur til byggða og þar hitti hún pabba sinn sem var að leita að henni. Þetta var mjög skemmtilegt og voru börnin mjög áhugasöm og sátu mjög stillt og prúð og hlustuðu.

kv Ból og Bakki

  • 1
Flettingar í dag: 135
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 197
Gestir í gær: 47
Samtals flettingar: 367726
Samtals gestir: 83302
Tölur uppfærðar: 22.2.2012 20:11:48

Vafraðu um

Um mig

Nafn:

Leikskólinn Skerjagarður

Farsími:

8221919

Heimilisfang:

Bauganes 13

Staðsetning:

Skerjafjörður

Heimasími:

5518088

Um:

Einkarekinn leikskóli fullur af lífi og fjöri . Ánægt starfsfólk,glöð börn og ánægðir foreldrar er okkar metnaður.

Tenglar